Um okkur
ALLT fasteignasala var stofnuð árið 2009 og hefur frá upphafi lagt áherslu á fagleg vinnubrögð, góða þjónustu og skýra upplýsingagjöf.
Í dag er Páll Þorbjörnsson eigandi og framkvæmdastjóri fyrirtækisins og Haukur Andreasson lögfræðingur fer fyrir skjalagerð og samningamálum.
Fasteignasalan rekur starfstöðvar í Reykjanesbæ og Hafnarfirði og þjónustar viðskiptavini víðs vegar um höfuðborgarsvæðið og Suðurnes sem og landið ALLT.
Allir starfsmenn ALLT fasteignasölu eru löggiltir fasteignasalar með víðtæka reynslu af fasteignaviðskiptum. Starfsemin byggir á stöðluðum verkferlum, innra gæðakerfi og þeim starfs- og siðareglum sem gilda um fasteignasala á Íslandi.
Við leggjum áherslu á vandaða ráðgjöf, gott upplýsingaflæði og markvissa markaðssetningu þannig að eignir fái sem besta kynningu og sýnileika á markaði.
Jafnframt höfum við byggt upp tengslanet áhugasamra kaupenda og einstaklinga í söluhug. Við vinnum markvisst að því að tengja saman fólk og eignir og kynnum nýjar eignir fyrir þeim sem kunna að hafa áhuga.
Við veitum jafnframt ráðgjöf vegna fasteignakaupa og bjóðum upp á persónulega einstaklingsfundi þar sem farið er yfir kaupferlið, fjármögnun, söluáætlanir og önnur atriði sem skipta máli við fasteignaviðskipti.
Markmið okkar er að skapa traustan farveg fyrir fasteignaviðskipti með faglegri ráðgjöf, skýrri upplýsingagjöf og vandaðri þjónustu í gegnum ALLT ferlið.

Kaupendur fasteigna
Leitaðu til okkar strax frá upphafi þegar þú ert að skoða næstu húsnæðiskaup.
Við erum reiðubúinn að aðstoða þig eftir fremsta megni.
Eftir margra ára reynslu hefur teymið okkar öðlast mikla reynslu og aðstoðar þig við að finna réttu eignina, aðstoðar við skoðun, samningsgerð og leiðir þig áfram. Við erum hér fyrir þig og erum reiðubúin að aðstoða þig.