Ef kemur upp galli

Í lögum um fasteignakaup kemur fram að fasteign teljist gölluð ef hún stenst ekki þær kröfur um gæði, búnað og annað sem leiðir af lögunum og kaupsamningi. Hafðu í huga að alltaf má þegar um notaðar fasteignir er að ræða finna eitthvað. Þegar um galla er að ræða varðandi notaðar fasteignir er mælt fyrir um að ágalli þurfi að rýra verðmæti eignarinnar svo nokkru nemi þannig að um galla sé að ræða. Gallaþröskuldurinn sem hér um ræðir og nánar er fjallað um hér að neðan á ekki við ef seljandi sýnir af sér saknæma háttsemi (þ.e. leynt gallanum/göllunum) enda alvarlegt sannist slíkt.
Á hinn bóginn er nokkuð erfitt að svara hvað ágallar þurfa að vera miklir til að geta talist gallar. Þarna skiptir máli hvað fasteignin er gömul og má ráða skv. greinargerð að verðrýrnun í elstu eignum þurfi að vera allt að 10% vegna slíkra ágalla. Sé hins vegar um nýlegt húsnæði að ræða myndu vera minni kröfur hvað ágalla ræðir. Telji kaupendur galla vera á þeirri eign sem keypt er rétt að hafa samband við þann fasteignasala sem annaðist milligönguna án tafar um ráð varðandi framhald málsins. Kaupandi á ekki að bæta úr hinum meinta galla án samráðs við seljenda.
Ekki má halda eftir hærri greiðslu en sem nemur þeirri fjárhæð sem ætla má að kosti að bæta úr hinum meinta galla. Mjög varlega þarf að fara í að halda eftir greiðslu. Telji fasteignasali kröfu kaupanda geta átt rétt á sér reynir hann almennt sættir með aðilum þar sem hann á grundvelli sérfræðiþekkingar sinnar reynir að ná sáttum með aðilum. Rétt er að benda á nokkur dómafordæmi sem Félag fasteignasala hefur tekið saman vegna galla á fasteignum sem birt er undir athyglisverðir dómar á heimasíðu Félags fasteignasala [email protected].
Kaupandi getur ekki borið fyrir sig galla á fasteign sem hann þekkti til eða átti að þekkja til þegar kaupsamningurinn var gerður. Hafi kaupandi skoðað fasteign, áður en kaup gerðust, eða án nægjanlegrar ástæðu látið undir höfuð leggjast að skoða hana þótt seljandi skoraði á hann um það getur hann ekki borið fyrir sig galla sem hann mátt sjá við slíka skoðun. Þetta á þó ekki við ef seljandi sýndi af sér stórkostlegt gáleysi eða framferði hans stríðir með öðrum hætti gegn heiðarleika og góðri trú.
Fasteignasali skal tryggja sér ótvírætt umboð frá réttum aðila til þeirrar milligöngu sem hann tekur að sér. Hafi hann einkaumboð til sölumeðferðar eignarinar skal geta þess glögglega.