Hlutverk og skyldur fasteignasala

Löggildingu sýslumanns þarf til milligöngu um kaup, sölu eða skipti á fasteignum.
Hlutverk fasteignasala er að leiða saman kaupanda og seljanda, ber honum að gæta réttmætra hagsmuna beggja. Þú átt rétt á ráðgjöf gegnum allt ferli viðskiptanna frá fasteignasalanum.
Skylda að gera samning Fasteignasali skal gera skriflegan samning við kaupanda og greina frá útlögðum kostnaði.
Fasteignasali skal hafa ábyrgðartryggingu vegna fjártjóns sem leitt getur af störfum hans eða starfsfólks hans.
Fasteignasali skoðar eign og semur rækilegt yfirlit um þau aðalatriði sem máli geta skipt við sölu eignarinnar. Í söluyfirliti lýsir hann m.a. eigninni og ástandi hennar, fyrirhuguðum framkvæmdum, áhvílandi lánum, verði og söluskilmálum. Hann ber ábyrgð á því að upplýsingar sem settar eru fram séu réttar en söluyfirlitið enda það mjög mikilvægt gagn.
Fasteignasali skal annast alla skjalagerð varðandi söluna og hvílir sú skylda á honum að sitja alla fundi þar sem skjöl eru undirrituð hverju nafni sem nefnast og votta í framhaldinu skjalagerðina. Hann skal leiðbeina kaupanda rækilega um gerð tilboðs og gerir síðan í framhaldinu kaupsamning og í lok viðskiptana afsal en þá útbýr hann kostnaðaruppgjör milli seljanda og kaupanda varðandi söluna.
Fasteign í smíðum skal lýst nákvæmlega miðað við þann tíma þegar kaupandi á að taka við eigninni og byggingarstig skal vera í samræmi við staðla.
Félagsmenn innan Félags fasteignasala lúta ströngum siðareglum við störf sín. Auk þess er sú skylda að félagsmenn viðhaldi reglulega fagþekkingu sinni. Félag fasteignasala heldur úti umfangsmikilli sérsniðinni sí/endurmenntun til að auka og treysta faglega hæfni félagsmanna sinna. Öll endurmenntun er gjaldfrjáls fyrir félagsmenn FF.