Söluyfirlit - Mikilvægt að lesa yfir
Samkvæmt lögum um sölu fasteigna hvílir sú skylda á fasteignasala að útbúa söluyfirlit. Söluyfirlitið er mjög mikilvægt skjal sem fasteignasali ber ábyrgð á og hefur að geyma rækilegt yfirlit um þau atriði sem skipt geta máli við sölu eignarinnar. Áður en tilboð er gert í eign skal væntanlegum tilboðsgjafa (kaupanda) afhent söluyfirlitið og á hann með nafnritun sinni að staðfesta móttöku söluyfirlitsins og dagsetningu (sönnun að hafi verið kynnt skjalið). Innihald söluyfirlitsins ásamt rækilegri skoðun eignarinnar á að geta orðið grundvöllur ákvörðunar um kaup eignarinnar og um leið hvaða verð kaupandi er tilbúinn að greiða.
Fasteignasali á sjálfur að afla þeirra upplýsinga sem fram eiga að koma í söluyfirliti og að auki að skoða fasteignina. Mikilvægt er að kaupandi hugi mjög vel að þessum þætti í ferlinu og fái nauðsynlegar skýringar frá fasteignasala sínum á öllu því í söluyfirlitinu sem hann telur sig ekki hafa nægar upplýsingar um. Í söluyfirliti á einnig að vera til staðar yfirlýsing seljanda að söluyfirlitið sé rétt og samkvæmt bestu vitund hans. Sé söluyfirlit rangt eða villandi getur fasteignasali orðið ábyrgur gagnvart kaupanda sýni hann af sér gáleysi við gerð þess.
Í söluyfirliti þarf auk almennrar lýsingar m.a. að koma fram:
A. söluverð það sem eigandi óskar að fá fyrir eign sé það ákveðið,
B. staðsetning eignar og númer, stærð hennar samkvæmt opinberum skrám, fasteignamat, brunabótamat, byggingarlag og byggingarefni og byggingarár eignar og einstakra hluta hennar ef við á; teikning sem sýni fyrirkomulag innan húss skal jafnan vera fyrir hendi, svo og lóðaruppdráttur sé hann til,
C. upplýsingar um ástand eignar og einstakra hluta hennar, þar á meðal um galla sem seljanda og/eða fasteignasala er kunnugt um á eign,
D. föst gjöld af eigninni, áhvílandi veðskuldir, kvaðir og önnur eignahöft, samkvæmt veðbókarvottorði; tilgreina skal eftirstöðvar og lánskjör, þar á meðal vexti og verðtryggingu allra áhvílandi veðskulda og kvaða og tilgreina sérstaklega ef skuld er í vanskilum; um þær veðskuldir sem fylgja eiga við sölu skal tilgreina fjölda ógreiddra afborgana,
E. kostnaður sem kaupandi hefur af kaupum, þar á meðal þinglýsingarkostnaður, stimpilgjöld, umsýslukostnaður kaupanda, lántökukostnaður sé það unnt o.fl.
F. tekjur af eigninni ef um er að ræða eign sem ætluð er til atvinnustarfsemi,
G. afhendingarástand eignar sem seld er ófullgerð, og skal það vera í samræmi við staðla sem út eru gefnir af opinberum stofnunum er annast byggingarrannsóknir eða byggingareftirlit,
H. húsgjöld og yfirstandandi eða væntanlegar framkvæmdir sem búið er að ákveða á fundi húsfélags, sé um fjöleignarhús að ræða, og um stöðu eiganda gagnvart hússjóði og framkvæmdasjóði húsfélags,
I. eignaskiptayfirlýsing eða samningur sé um fjöleignarhús að ræða,
J. önnur atriði sem kunnugt er um, svo sem skýrslur um ástand eignar sem gerðar hafa verið. Algeng vandamál sem komið hafa upp vegna söluyfirlits Nokkuð hefur borið á að tveir eftirfarandi þættir hafi valdið ágreiningi og kaupendur ekki talið að þeirra hafi verið getið með nægjanlegum skýrum hætti.
1) Yfirlýsing húsfélags: Mikilvægt er að fyrir liggi yfirlýsing húsfélags m.a. um húsgjöld, yfirstandandi eða væntanlegar framkvæmdir sem búið er að ákveða á fundi húsfélags , stöðu eiganda gagnvart hússjóði og framkvæmdasjóði húsfélags. Þarna er um mikilvægan þátt að ræða sem huga þarf vel að og kaupandi að spyrja um allt sem að er óljóst enda skiptir vitaskuld kaupanda miklu að þessar upplýsingar séu réttar. Upp geta komið mál þar sem framkvæmdir hafa ekki verið samþykktar endanlega en eru fyrirhugaðar, framkvæmdir geta verið hafnar og talsvert ferli fram undan. Þetta er mikilvægt að ræða vel við fasteignasalann enda geta komið upp álitamál. Seljandi þarf einnig að staðfesta að upplýsingar húsfélagsins séu réttar í söluyfirlitinu.
2) Skiptasamningar: Lögum samkvæmt eiga vera til skiptasamningar um öll fjöleignarhús til að hægt sé að selja einstaka hluta þess.
3) Fylgifé: Upp geta komið vandamál hvort ýmsir hlutir fylgi með við sölu – helst hefur þetta snúið að tækjum í eldhúsi þ.e. ískáp og uppþvottavél hvor sé hluti af innréttingu, álitamál varðandi hillur og ljós. Mikilvægt að spyrja ef eitthvað er óljóst.