Dísa Edwards
Ég heiti Dísa Edwards og er löggiltur fasteignasali hjá Allt fasteignasölu. Mér finnst starfið fyrst og fremst snúast um fólk og traust. Að kaupa eða selja heimili er stór ákvörðun og ég legg áherslu á að viðskiptavinir mínir finni að ég hlusta, skilji þarfir þeirra og fylgi málunum eftir af alúð.
Ég hef áratuga reynslu af bæði þjónustustörfum og íþróttaþjálfun og sú reynsla hefur kennt mér að eiga góð samskipti við ólíkt fólk, sýna nærgætni og halda yfirsýn þegar mikið er að gerast. Ég tek þá reynslu með mér í starf mitt sem fasteignasali, þar sem skýr upplýsingagjöf, gott aðgengi og vönduð vinnubrögð skipta miklu máli.
Utan vinnu á fjölskyldan stóran sess í lífi mínu, en ég er þriggja barna móðir og einnig er ég keppnisíþróttakona í Olympiskum lyftingum og CrossFit. Íþróttirnar hafa kennt mér að árangur byggist á aga, þrautseigju og stöðugri vinnu. Þann sama metnað legg ég í verkefnin mín sem fasteignasali: að vanda undirbúninginn, huga að smáatriðunum og fylgja hverju máli alla leið.
Hjá mér færðu persónulega þjónustu og fasteignasala sem leggur sig fram um að þú sért vel upplýst og örugg í gegnum allt ferlið. Markmið mitt er að ná góðum árangri fyrir þig og gera fasteignaviðskiptin eins skýr og hnökralaus og kostur er.
Dísa Edwards