Opið hús: 2. desember, 2026 17:30 - 18:00

Stapavellir 21

260 Reykjanesbær | Raðhús
81.900.000 kr.
664 þ.kr./m2
3 svefnherbergi
123.3 m2
Byggt 2007
Elín Frímannsdóttir
Elín Frímannsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Halla Vilbergsdóttir
Halla Vilbergsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Ertu með einhverjar spurningar?

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

-

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu Stapavelli 21, 260 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 229-5996, birt stærð 123.3 m², þar af innangengur bílskúr 23,6 m². Einstaklega skemmtileg eign, miðsvæðis í Reykjanesbæ, stutt í alla helstu þjónustu, íþróttasvæði, leik og grunnskóla og verslun. 

Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð að undanförnu. Má þar nefna nýja eldhúsinnréttingu, nýjan bakarofn og spanhelluborð með innbyggðum háfi, nýleg gólfefni í svefnherbergjum, nýlega rofa og tengla, nýjan sturtuklefa ásamt nýjum og vönduðum kösturum á brautum. Skipulagi eignarinnar hefur jafnframt verið breytt þannig að svefnherbergin eru nú þrjú og þvottaaðstaða hefur verið færð í bílskúr. Húsið hefur verið háþrýstiþvegið og sílanborið. Eignin afhendist við kaupsamning.

Nánari upplýsingar veitir/veita
Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 5605521, tölvupóstur [email protected].
Halla Vilbergs Löggiltur fasteignasali í síma 7727930, tölvupóstur  [email protected].

Nánari lýsing:
Forstofa með góðum fataskáp.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í björtu og opnu rými. Ný eldhúsinnrétting, gert er ráð fyrir innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Nýr bakarofn í vinnuhæð og nýtt spanhelluborð með innbyggðum háfi. Gólf í alrými eru án gólfefna og tilbúin undir parket. Frá rýminu er útgengt á verönd með steyptum skjólveggjum.
Hjónaherbergi með nýlegu gólfefni og góðu skápaplássi.
Tvö svefnherbergi með nýlegum gólfefnum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, góðri innréttingu, upphengdu salerni og nýjum sturtuklefa. Frá baðherbergi er útgengt.
Bílskúr með flísum á gólfi, skolvaski og þvottaaðstöðu.
Lóð er frágengin.
Bílaplan og stétt eru hellulögð með snjóbræðslu.

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Hvers virði er eignin þín? Reiknaðu áætlað verðmat strax - eða fáðu nákvæmt verðmat frá löggiltum fasteignasala.

Sæki nálæga staði…

Áætlaður kaupkostnaður

400.840 kr.

Stimpilgjald
327.600 kr.
Lántökugjald
0 kr.
Þinglýsing skjala
3.800 kr.
Umsýslugjald
69.440 kr.

Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði við fyrstu kaup.

Lánareiknivél

kr.
kr.

Fyrsta greiðsla

298.826 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 1

Fyrsta greiðsla

308.202 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 2

Fyrsta greiðsla

331.928 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 3
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Íslandsbanki

0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.

Yfir 80% veðsetningu bætist við óverðtryggt aukalán til mest 10 ára á 11,35% vöxtum, að hámarki 7 m.kr. og 90% heildarveðsetningu við fyrstu kaup.

Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.

Vaxtatafla gildir frá 3. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.

Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026

Fleiri myndir

Stapavellir 1
Stapavellir 2
Stapavellir 3
Stapavellir 4
Stapavellir 5
Stapavellir 6
Stapavellir 7
Stapavellir 8
Stapavellir 9
Stapavellir 10
Stapavellir 11
Stapavellir 12
Stapavellir 13
Stapavellir 14
Stapavellir 15
Stapavellir 16
Stapavellir 17
Stapavellir 18
Stapavellir 19
Stapavellir 20
Stapavellir 21
Stapavellir 22
Stapavellir 23
Stapavellir 24