Opið hús: 24. nóvember, 2026 17:00 - 17:30

Eskivellir 5

221 Hafnarfjörður | Fjölbýli
64.900.000 kr.
767 þ.kr./m2
2 svefnherbergi
0 baðherbergi
84.6 m2
Byggt 2005
Ertu með einhverjar spurningar?

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:
Eskivellir 5, 221 Hafnarfjörður er hugguleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með þvottaherbergi innan íbúðar og góðum suðursvölum. Eignin er skráð 84,6 fm skv. fasteignaskrá HMS. Þar af er íbúðin 75,6 fm og stór geymsla í kjallara 9 fm. Íbúðin skiptist í forstofuhol, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi innaf, ásamt sérgeymslu í kjallara. Lóðin er vel frágengin með stóru, steinsteyptu bílastæði fyrir framan hús.

Nánari lýsing:
Forstofa/hol: Rúmgott hol með stórum skápum úr eik og dyrasíma með mynd.
Alrými: Eldhús: og stofa eru saman í björtu og opnu alrými með stórum gluggum. Úr stofunni er gengið út á svalir.
Eldhús: Svört innrétting með góðu skápaplássi, ljósri borðplötu og lýsingu undir efri skápum. Bakaraofn er í vinnuhæð, helluborð með háf yfir og innbyggð uppþvottavél. Gott pláss er fyrir borðstofuborð við gluggann.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa sem rúmar vel stóran hornsófa með parket á gólfum. 
Svalir: Rúmgóðar yfirbyggðar svalir með viðarflísum á gólfi.
Svefnherbergi: Tvö svefnherbergi, bæði með skápum og parket á gólfum.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með baðkari og sturtu, upphengdu salerni og innréttingu með handlaug ofan á borði og stórum spegli.
Þvottahús: Sérþvottahús innan íbúðar, með vinnuborði, vaski og hillum. Flíar á gólfi. 
Geymsla og sameign: Sérgeymsla í kjallara, ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Bílastæði: Næg bílastæði eru fyrir framan húsið.

Staðsetning:
Eignin er á vinsælum stað á Völlunum í Hafnarfirði. Stutt er í grunnskóla, leikskóla, verslun og þjónustu, og falleg útivistarsvæði eru í næsta nágrenni.

Nánari upplýsingar veitir/veita:
Ásgeir Þór Ásgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 772-0102, tölvupóstur [email protected].

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Sæki nálæga staði…

Áætlaður kaupkostnaður

332.840 kr.

Stimpilgjald
259.600 kr.
Lántökugjald
0 kr.
Þinglýsing skjala
3.800 kr.
Umsýslugjald
69.440 kr.

Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði við fyrstu kaup.

Lánareiknivél

kr.
kr.

Fyrsta greiðsla

234.334 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 1

Fyrsta greiðsla

244.228 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 2

Fyrsta greiðsla

255.472 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 3
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Landsbankinn

0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.

Verðtryggð lán eru aðeins í boði við fyrstu kaup, til 20 ára og að 85% veðsetningu. Óverðtryggð lán ná að 80%, eða 90% við fyrstu kaup.

Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.

Vaxtatafla gildir frá 1. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.

Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026

Fleiri myndir

Eskivellir 1
Eskivellir 2
Eskivellir 3
Eskivellir 4
Eskivellir 5
Eskivellir 6
Eskivellir 7
Eskivellir 8
Eskivellir 9
Eskivellir 10
Eskivellir 11
Eskivellir 12
Eskivellir 13
Eskivellir 14
Eskivellir 15
Eskivellir 16
Eskivellir 17
Eskivellir 18
Eskivellir 19
Eskivellir 20
Eskivellir 21
Eskivellir 22
Eskivellir 23
Eskivellir 24
Eskivellir 25
Eskivellir 26