Hraungata 27

210 Garðabær | Fjölbýli
115.000.000 kr.
456 þ.kr./m2
3 svefnherbergi
1 baðherbergi
252.1 m2
Byggt 2022
Sigurjón Rúnarsson
Sigurjón Rúnarsson
Löggiltur fasteignasali
Páll Þorbjörnsson
Páll Þorbjörnsson
Löggiltur fasteignasali - Framkvæmdastjóri
Ertu með einhverjar spurningar?

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

-

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Hraungata 27, 210 Garðabær, birt stærð 139.4 fm.
Glæsileg og vel vöndupð fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð í nýlegu lyftuhúsi í Urriðaholti, með bílskúr í lokaðri bílageymslu og 25,8 fm svölum með fallegu útsýni. Íbúðin er tilbúin til afhendingar við kaupsamning.

Skipulag eignar
Gengið er inn í anddyri með fataskáp upp í loft. Eldhús, stofa og borðstofa eru í einu opnu og björtu alrými. Í eldhúsinu er falleg innrétting og eyja með spanhelluborði, auk innbyggðs ísskáps, uppþvottavélar og tvöfalds bakaraofns. Úr alrýminu er útgengt á 25,8 fm svalir með glerhandriði. Svefnherbergin eru þrjú og fataskápur upp í loft í þeim öllum. Hjónaherbergið er 13,5 fm og hin tvö herbergin eru 10,4 fm og 8,1 fm. Baðherbergið er með flísum á gólfi og að hluta á veggjum, upphengdu salerni, sturtu með glerskilrúmi, innréttingu undir og við handlaug og handklæðaofni. Inn af baðherberginu er afstúkuð þvottaaðstaða með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, og gluggi er á rýminu. Íbúðinni fylgir 26,7 fm bílskúr í lokaðri bílageymslu á 1. hæð og 7,5 fm geymsla í sameign á sömu hæð.

Nánari upplýsingar veita:
Páll Þorbjörnsson, löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501 eða á [email protected]
Sigurjón Rúnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 560-5524 eða á [email protected]​
​​​​​​

** Innréttingar frá FORMUS með Silestone-steinborðplötum í eldhúsi og á baðherbergi
** Eldhústæki frá Ormsson: spanhelluborð, tvöfaldur bakaraofn, gufugleypir, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur með frysti
** Innfelld lýsing og Plejd-snjallkerfi, þannig að dimmanlegum ljósum má stýra úr snjallsíma eða spjaldtölvu
** 60 x 60 cm flísar frá Birgisson á gólfi baðherbergis og þvottaaðstöðu
** Ringo-innihurðir frá Birgisson
** Rationel-gluggar með K-gleri
** Glerhandrið á svölum
** Myndavéladyrasími
** Lofttúður í stofu með innbyggðri hljóð- og ryksíu sem halda loftinu á hringrás um íbúðina


Nánari lýsing eignar
Anddyri: Fataskápur upp í loft.
Eldhús: Falleg innrétting og eyja með spanhelluborði. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél, tvöfaldur bakaraofn. Útgengt á svalir.
Stofa/borðstofa: Opið og bjart rými sem liggur saman við eldhúsið. Útgengt á 25,8 fm svalir.
Hjónaherbergi: 13,5 fm með fataskáp upp í loft.
Herbergi I: 10,4 fm með fataskáp upp í loft.
Herbergi II: 8,1 fm með fataskáp upp í loft.
Baðherbergi/þvottahús: Flísar á gólfi og að hluta á veggjum. Upphengt salerni, sturta með glerskilrúmi, innrétting undir og við handlaug og handklæðaofn. Afstúkuð aðstaða með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi er á rýminu.
Svalir: 25,8 fm með glerhandriði og útsýni.
Bílskúr: 26,7 fm, í lokaðri bílageymslu á 1. hæð.
Geymsla: 7,5 fm, í sameign á 1. hæð.

Húsið
Hraungata 25-27 er steinsteypt þriggja hæða fjölbýlishús með 15 íbúðum, 2–4 herbergja, í tveimur stigagöngum. Lyfta er í báðum stigagöngum. Á 1. hæð eru þrjár íbúðir með sérafnotareitum, auk anddyra, geymslna, hjóla- og vagnageymslna, inntaksrýmis og bílageymslu með átta bílskúrum. Á 2. og 3. hæð eru sex íbúðir á hvorri hæð. Kristinn Ragnarsson arkitekt teiknaði húsið, og það uppfyllir ásamt íbúðunum skilyrði algildrar hönnunar.

Umhverfið
Urriðaholt í Garðabæ er nýstárlegt hverfi sem liggur að óspilltri náttúru. Þar er stutt í helstu samgönguæðar, og hverfið er vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins. Í jaðri þess eru vinsæl útivistarsvæði og einn glæsilegasti golfvöllur landsins. Hverfið var skipulagt til að auka lífsgæði íbúanna í sátt við náttúruna og umhverfið. Urriðaholt var fyrsta hverfið á Íslandi til að hljóta vistvottun samkvæmt BREEAM Communities.

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Hvers virði er eignin þín? Reiknaðu áætlað verðmat strax - eða fáðu nákvæmt verðmat frá löggiltum fasteignasala.

Sæki nálæga staði…

Áætlaður kaupkostnaður

533.240 kr.

Stimpilgjald
460.000 kr.
Lántökugjald
0 kr.
Þinglýsing skjala
3.800 kr.
Umsýslugjald
69.440 kr.

Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði við fyrstu kaup.

Lánareiknivél

kr.
kr.

Fyrsta greiðsla

419.596 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 1

Fyrsta greiðsla

432.762 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 2

Fyrsta greiðsla

466.076 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 3
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Íslandsbanki

0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.

Yfir 80% veðsetningu bætist við óverðtryggt aukalán til mest 10 ára á 11,35% vöxtum, að hámarki 7 m.kr. og 90% heildarveðsetningu við fyrstu kaup.

Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.

Vaxtatafla gildir frá 3. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.

Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026

Fleiri myndir

Hraungata 1
Hraungata 2
Hraungata 3
Hraungata 4
Hraungata 5
Hraungata 6
Hraungata 7
Hraungata 8
Hraungata 9
Hraungata 10
Hraungata 11
Hraungata 12
Hraungata 13
Hraungata 14
Hraungata 15
Hraungata 16
Hraungata 17
Hraungata 18
Hraungata 19
Hraungata 20
Hraungata 21
Hraungata 22
Hraungata 23
Hraungata 24
Hraungata 25
Hraungata 26
Hraungata 27
Hraungata 28
Hraungata 29
Hraungata 30
Hraungata 31
Hraungata 32
Hraungata 33
Hraungata 34
Hraungata 35
Hraungata 36
Hraungata 37