Dalsbraut 28

Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á neðri hæð með sérinngangi, yfirbyggðri verönd og girtum garði. Íbúðin er í vinsælu og fjölskylduvænu Stapaskólahverfi í Innri-Njarðvík. Sérmerkt bílastæði fylgir eigninni.
Íbúðin skiptist í forstofu, bjarta stofu og borðstofu með opnu eldhúsi, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Úr stofu er gengið út á yfirbyggða verönd og þaðan út í girtan garð.
Nánari upplýsingar veitir:
Sigurjón Rúnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 560-5524 eða á netfanginu [email protected].
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Parketlögð forstofa með fataskáp.
Eldhús: Falleg, grá sprautulökkuð eldhúsinnrétting með quartz-stein. Parket á gólfi. Eldhúsið er opið inn í stofu og borðstofu.
Stofa og borðstofa: Bjart og opið rými með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á yfirbyggða verönd.
Verönd og garður: Yfirbyggð verönd sem nýtist allt árið. Af veröndinni er gengið út í girtan garð.
Svefnherbergi: Tvö góð svefnherbergi. Bæði eru með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og að hluta á veggjum. Walk in sturta falleg innrétting. Góð þvottaaðstaða er inni á baðherberginu ásamt góðu skápaplássi.
Sérgeymsla í sameign fylgir eigninni. Einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Staðsetning:
Eignin er í Stapaskólahverfi, vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í Innri-Njarðvík. Stutt er í grunnskóla, leikskóla og útivistarsvæði og fallegar gönguleiðir eru í næsta nágrenni.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Smelltu hér Hvers virði er eignin þín? Reiknaðu áætlað verðmat strax - eða fáðu nákvæmt verðmat frá löggiltum fasteignasala.
Sæki nálæga staði…
Áætlaður kaupkostnaður
296.840 kr.
- Stimpilgjald
- 223.600 kr.
- Lántökugjald
- 0 kr.
- Þinglýsing skjala
- 3.800 kr.
- Umsýslugjald
- 69.440 kr.
Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði við fyrstu kaup.
Lánareiknivél
Fyrsta greiðsla
210.360 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
230.696 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
149.076 kr.
Verðtryggt
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Arion banki
0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.
Arion lánar að 80%, eða 85% við fyrstu kaup. Verðtryggð lán eru að 70% veðsetningu og til mest 30 ára.
Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.
Vaxtatafla gildir frá 3. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.
Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026
Fleiri myndir

























