Dalsbraut 4


Eignin er skráð 80,6 fm. skv. fasteignaskrá HMS. Þar af er íbúðin 75 fm og geymsla á jarhæð 5,6 fm. Íbúðin skiptist í anddyri, stofu og eldhús í opnu alrými, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Þvottaaðstaða er innan íbúðar. Stórt og mikið bílastæði fyrir framan.
Nánari lýsing eignar:
Anddyri: Gengið er inn um sérinngang af útisvölum. Flísar eru á gólfi við inngang og rúmgóður, hvítur fataskápur með háglansáferð er í holi.
Hol: Bjart hol með harðparketi á gólfi og kösturum í lofti. Það tengir saman svefnherbergi, baðherbergi og alrými.
Eldhús: Í eldhúsinu er hvít L-laga innrétting með efri og neðri skápum og ljósgrárri borðplötu. Eldhúsið er opið inn í stofu og parket á gólfum.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð stofa í opnu alrými með eldhúsi og parket á gólfum. Úr stofu er útgengt á suðvestursvalir.
Svefnherbergi I: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og stórum þreföldum fataskáp.
Svefnherbergi II: Bjart herbergi með parketi á gólfi og tvöföldum fataskáp.
Baðherbergi: Gólf og veggir eru flísalögð. Sturtan er opin (walk-in). Salerni er upphengt. Hvít innrétting er með dökkri borðplötu og yfir henni spegilskápur með innbyggðri lýsingu.
Þvottaaðstaða: Er á baðherbergi og þar eru tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Skápur er fyrir ofan.
Svalir: Rúmgóðar og skjólgóðar suðvestursvalir undir þaki. Gervigras er á gólfi og svalahandrið er með skjólklæðningu.
Geymsla: 5,6 fm sérgeymsla á jarðhæð.
Eignin er í Dalshverfi í Innri-Njarðvík, nýlegu og fjölskylduvænu hverfi. Stapaskóli er við sömu götu og stutt er í alla helstu þjónustu. Aðkoma að Reykjanesbraut er góð, þaðan er greið leið til höfuðborgarsvæðisins.
Nánari upplýsingar veitir/veita:
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur [email protected]
Ásgeir Þór Ásgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 772-0102, tölvupóstur [email protected]
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Sæki nálæga staði…
Áætlaður kaupkostnaður
296.840 kr.
- Stimpilgjald
- 223.600 kr.
- Lántökugjald
- 0 kr.
- Þinglýsing skjala
- 3.800 kr.
- Umsýslugjald
- 69.440 kr.
Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði við fyrstu kaup.
Lánareiknivél
Fyrsta greiðsla
210.360 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
230.696 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
149.076 kr.
Verðtryggt
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Arion banki
0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.
Arion lánar að 80%, eða 85% við fyrstu kaup. Verðtryggð lán eru að 70% veðsetningu og til mest 30 ára.
Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.
Vaxtatafla gildir frá 3. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.
Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026
Fleiri myndir























