Hafnargata 32

230 Reykjanesbær | Fjölbýli
47.800.000 kr.
696 þ.kr./m2
1 svefnherbergi
1 baðherbergi
68.7 m2
Byggt 1972
Halla Vilbergsdóttir
Halla Vilbergsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Ertu með einhverjar spurningar?

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu Hafnargötu 32, íbúð 303  Reykjanesbæ.  

Um er að ræða glæsilega og mikið endurnýjaða 2ja herbergja íbúð á þriðju hæð í lyftuhúsi að Hafnargötu 32 í Reykjanesbæ. Íbúðin er 68,7 fm og einkennist af nútímalegum innréttingum, fallegum efnisvali og vel nýttu rými.
Eignin býður upp á bjart og rúmgott alrými þar sem stofa, borðstofa og stílhreint eldhús mynda skemmtilega heild, með útgengi á svalir til austurs.
Íbúðin hefur verið endurnýjuð að stórum hluta, meðal annars með sérsmíðuðum innréttingum, nýlegum gólfefnum og eldhústækjum.


Nánari upplýsingar veitir:
Halla Vilbergsdóttir löggiltur fasteignasali, í síma 7727930, tölvupóstur [email protected].


Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Er með með parketi á gólfi og svörtum fataskáp.
Eldhús: Er með parketi á gólfi og stílhreinni svartri innréttingu með helluborði, ofni og háf. Þar er innbyggður ísskápur og uppþvottavél. 
Stofa /borðstofa: Er með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á svalir snúa í austur.
Svefnherbergi: Er með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Baðherbergi: Er með svartri innréttingu, upphengdu salerni og baðkari með sturtu.
Rúmgóð geymsla fylgir og er hún á sömu hæð.

Þvottaaðstaða er á hverri hæð og er sameiginleg fyrir íbúðirnar á hæðinni, þar eru flísar á gólfi og létt innrétting þar sem hólfað er niður fyrir hverja íbúð með skápum fyrir ofan.
Sameign er mjög snyrtileg, á gólfum er flotsteypa og teppi.
Sameiginleg hjóla/vagnageymsla.

Nýlegt dyrasýmakerfi með myndavél. Skipt hefur verið um öll gólfefni, innréttingar, eldhústæki, blöndunartæki í eldhúsi og baði og annað sem snýr að innviðum íbúðanna. Pípulagnir, raflagnir og aðrar lagnir hafa verið endurnýjaðar og lagaðar eftir þörfum. Innréttingar eru sérsmíðaðar í eldhús og bað, auk skápa í herbergi og anddyri. Gluggar, gler og hurðar í íbúðarhluta og sameign hússins hafa verið endurnýjaðar.  
Merkt bílastæði á baklóð fylgir eigninni og keyrt að því frá Suðurgötu


Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Sæki nálæga staði…

Áætlaður kaupkostnaður

264.440 kr.

Stimpilgjald
191.200 kr.
Lántökugjald
0 kr.
Þinglýsing skjala
3.800 kr.
Umsýslugjald
69.440 kr.

Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði við fyrstu kaup.

Lánareiknivél

kr.
kr.

Fyrsta greiðsla

172.591 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 1

Fyrsta greiðsla

179.878 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 2

Fyrsta greiðsla

188.160 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 3
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Landsbankinn

0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.

Verðtryggð lán eru aðeins í boði við fyrstu kaup, til 20 ára og að 85% veðsetningu. Óverðtryggð lán ná að 80%, eða 90% við fyrstu kaup.

Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.

Vaxtatafla gildir frá 1. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.

Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026

Fleiri myndir

Hafnargata 1
Hafnargata 2
Hafnargata 3
Hafnargata 4
Hafnargata 5
Hafnargata 6
Hafnargata 7
Hafnargata 8
Hafnargata 9
Hafnargata 10
Hafnargata 11
Hafnargata 12
Hafnargata 13
Hafnargata 14
Hafnargata 15
Hafnargata 16
Hafnargata 17
Hafnargata 18
Hafnargata 19
Hafnargata 20
Hafnargata 21
Hafnargata 22
Hafnargata 23
Hafnargata 24
Hafnargata 25
Hafnargata 26
Hafnargata 27
Hafnargata 28