

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilega 930 fm einbýlishúsalóð með fallegu sjávarútsýni að Sjávarborg 10, 190 Vogum.
Með í kaupunum fylgja teikningar af 262,5 fm einbýlishúsi á einni hæð með innbyggðum bílskúr.
Samkvæmt fyrirliggjandi teikningum er gert ráð fyrir glæsilegu 262,5 fm einbýlishúsi á einni hæð með innbyggðum 35,4 fm bílskúr. Húsið skiptist í rúmgóða stofu og eldhús í opnu og björtu alrými, fimm svefnherbergi, þrjú baðherbergi, þvottahús, gang og innbyggðan bílskúr. Einnig er gert ráð fyrir tæknirými undir þaki.
Lóðin er endalóð, 930 fm að stærð og er staðsett á fallegum stað við sjóinn með sjávarútsýni. Samkvæmt teikningum er gert ráð fyrir þremur bílastæðum á lóðinni.
Byggingaráform hafa verið samþykkt af byggingarfulltrúa Sveitarfélagsins Voga.
Um er að ræða eign með fastanúmerið 252-3183 og landnúmerið L234515, ásamt tilheyrandi lóðarréttindum.
Nánari upplýsingar veita:
Halla Vilbergs lgf, í síma 772-7930, tölvupóstur [email protected]
Ásta María Jónasdóttir lgf, í síma 847-5746, tölvupóstur [email protected].
Nánari lýsing
Um er að ræða 930 fm einbýlishúsa endalóð á fallegum stað við Sjávarborg 10 í Vogum á Vatnsleysuströnd. Lóðin er staðsett í nálægð við sjóinn og býður upp á fallegt sjávarútsýni og víðsýni yfir náttúruna í kring. Umhverfið einkennist af opnum svæðum og fallegu landslagi.
Lóðin er að hluta til undirbúin fyrir byggingarframkvæmdir og fyrir liggja samþykkt byggingaráform fyrir glæsilegu 262,5 fm einbýlishúsi á einni hæð með innbyggðum bílskúr.
Helstu upplýsingar um lóðina:
Lóðin er 930 fm að stærð.
Samþykkt byggingaráform fyrir 262,5 fm einbýlishúsi á einni hæð.
Innbyggður bílskúr, 35,4 fm samkvæmt teikningum.
Nýtingarhlutfall fyrirhugaðrar byggingar er 0,28.
Gert er ráð fyrir þremur bílastæðum samkvæmt teikningum.
Teikningar og þrívíddarmyndir af fyrirhuguðu húsi fylgja með kaupunum.
Lóðin er að hluta til undirbúin fyrir byggingarframkvæmdir.
Fallegt sjávarútsýni og nálægð við náttúruna.
Fyrirhugað einbýlishús
Teikningar af glæsilegu 262,5 fm einbýlishúsi fylgja með kaupunum. Samkvæmt teikningum er gert ráð fyrir einbýlishúsi á einni hæð sem skiptist í forstofu, rúmgóða og bjarta stofu og eldhús í opnu alrými, fjögur svefnherbergi, þrjú baðherbergi, gang, þvottahús og innbyggðan 35,4 fm bílskúr. Einnig er gert ráð fyrir tæknirými undir þaki samkvæmt teikningum.
Húsið er hannað með áherslu á rúmgóð og björt alrými, góða herbergjaskipan og nútímalegt útlit. Stofa og eldhús mynda stórt og opið alrými sem er um 66 fm samkvæmt teikningum.
Húsið er timburhús með innbyggðum bílskúr og samkvæmt teikningum er gert ráð fyrir gólfhitakerfi.
Um er að ræða frábært tækifæri fyrir þá sem vilja byggja sitt eigið framtíðarheimili á fallegum stað við sjóinn. Teikningar fylgja með kaupunum og samþykkt byggingaráform liggja fyrir.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Sæki nálæga staði…
Áætlaður kaupkostnaður
192.840 kr.
- Stimpilgjald
- 119.600 kr.
- Lántökugjald
- 0 kr.
- Þinglýsing skjala
- 3.800 kr.
- Umsýslugjald
- 69.440 kr.
Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði við fyrstu kaup.
Lánareiknivél
Fyrsta greiðsla
112.518 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
123.396 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
79.738 kr.
Verðtryggt
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Arion banki
0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.
Arion lánar að 80%, eða 85% við fyrstu kaup. Verðtryggð lán eru að 70% veðsetningu og til mest 30 ára.
Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.
Vaxtatafla gildir frá 3. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.
Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026
Fleiri myndir

















