Pósthússtræti 3

230 Reykjanesbær | Fjölbýli
91.800.000 kr.
713 þ.kr./m2
2 svefnherbergi
1 baðherbergi
128.7 m2
Byggt 2006
Ertu með einhverjar spurningar?

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala kynnir í sölu  Pósthússtræti 3, 230 Reykjanesbær. Íbúð 202.

Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning. 

Um er að ræða glæsilega íbúð í fallegu og vönduðu fjölbýlishúsi að Pósthússtræti 3, ásamt sérstæði í bílgeymslu. Íbúðin er á annarri hæð og er íbúðin mjög vel staðsett í húsinu. Það er mikið og fallegt útsýni úr íbúðinni. Stærð íbúðarinnar 120,7 fm. ásamt sérgeymslu á jarðhæð sem er 8 fm., þannig að heildarstærð er 128,7 fm. Útgengt er út á yfirbyggðar svalir úr stofu. Svalirnar eru lokaðar með vönduðum svalalokunarbúnaði, stærð svalanna er 13,3 fm. Gólfhiti er í íbúðinni. Með íbúðinni fylgir sérstæði í bílageymslu, einnig er rúmgóð sameiginleg geymsla/hjólageymsla á jarðhæð. Sameign er snyrtileg og vel við haldið.
Fjölbýlishúsið er mjög vel staðsett við sjóinn og í fallegu umhverfi.
Lóðin er stór og vel frágengin, næg bílastæði. 


Heyrið í okkur og fáið skoðun!, eignin sýnd eftir þínum óskum
Nánari upplýsingar veita:
Halla Vilbergsdóttir löggiltur fasteignasali, í síma 7727930, tölvupóstur [email protected].
Páll Þorbjörnsson, löggiltur fasteignasali, í síma  560-5501, tölvupóstur [email protected]




Komið er inn í rúmgott anddyri með parketi á gólfi og góðum vönduðum skápum. Frá anddyri er gengið inn í hol. Frá holinu er gengið inn í tvö rúmgóð svefnherbergi og í endanum er rúmgott baðherbergi með sturtu. Frá holi er gengið inn í rúmgott fallegt eldhús með eyju og fallegri innréttingu. Borðstofan er í opnu rými við eldhúsið og stofuna. Stofan er stór og rúmgóð. Frá stofu er gengið út á rúmgóðar svalir. Sameiginlegur bílakjallari, góð þrif aðstaða fyrir bíla er í bílageymslu, eitt bílastæði í bílgeymslu fylgir íbúðinni. Bílgeymslan er mjög rúmgóð, en engar súlur eru í bílgeymslunni, þannig að það er mjög auðvelt að athafna sig. Búið er að setja upp hleðslustöð við bílastæðið.

Nánari lýsing:
Anddyri: Er með parket á gólfi og stór vandaður fataskápur.
Þvottaherbergi/geymsla: Er með flísar á gólfi, ný vönduð innrétting með skolvaski.
Hol: Er með parket á gólfi.
Stofa og borðastofa: Er með parket á gólfi, hurð úr stofu út á yfirbyggðar svalir með glæsilegu útsýni.
Eldhús: Er með parket á gólfi, vönduð innrétting með eyju, granít borðplata á eyju. Stór tvöfaldur ísskápur og uppþvottavél fylgja íbúðinni.
Hjónaherbergi: Er með parket á gólfi, stór vandaður fataskápur.
Svefnherbergi: Er með parket á gólfi, vandaður fataskápur.
Baðherbergi: Er með flísar á gólfi og veggjum, innrétting, sturta.

Geymsla, sérgeymsla á jarðhæð fylgir íbúðinni, geymslan er 8 fm. að stærð.
Bílastæði, sameiginlegur bílakjallari, góð þrif aðstaða fyrir bíla er í bílageymslu, eitt bílastæði í bílakjallara fylgir íbúðinni. Búið er að sitja upp hleðslustöð við bílastæðið.
Svalir eru yfirbyggðar 13,3 fm. svalir ( fm. ekki skráðir með í stærð eignar).


Hér er um að ræða glæsilega íbúð í fallegu og vönduðu fjölbýlishúsi ásamt sérstæði í bílgeymslu. Íbúðin er á annarri hæð og er íbúðin mjög vel staðsett í húsinu, það er mikið og fallegt útsýni úr íbúðinni. Stutt er í allar helstu verslanir og þjónustu.



 


Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Sæki nálæga staði…

Áætlaður kaupkostnaður

— kr.

Stimpilgjald
367.200 kr.
Lántökugjald
0 kr.
Þinglýsing skjala
3.800 kr.
Umsýslugjald
—

Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.

Umsýslugjald liggur ekki fyrir.

Lánareiknivél

kr.
kr.

Fyrsta greiðsla

334.947 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 1

Fyrsta greiðsla

345.457 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 2

Fyrsta greiðsla

372.051 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 3
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Íslandsbanki

0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.

Yfir 80% veðsetningu bætist við óverðtryggt aukalán til mest 10 ára á 11,35% vöxtum, að hámarki 7 m.kr. og 90% heildarveðsetningu við fyrstu kaup.

Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.

Vaxtatafla gildir frá 3. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.

Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026

Fleiri myndir

Pósthússtræti 1
Pósthússtræti 2
Pósthússtræti 3
Pósthússtræti 4
Pósthússtræti 5
Pósthússtræti 6
Pósthússtræti 7
Pósthússtræti 8
Pósthússtræti 9
Pósthússtræti 10
Pósthússtræti 11
Pósthússtræti 12
Pósthússtræti 13
Pósthússtræti 14
Pósthússtræti 15
Pósthússtræti 16
Pósthússtræti 17
Pósthússtræti 18
Pósthússtræti 19
Pósthússtræti 20
Pósthússtræti 21
Pósthússtræti 22
Pósthússtræti 23
Pósthússtræti 24
Pósthússtræti 25
Pósthússtræti 26
Pósthússtræti 27
Pósthússtræti 28
Pósthússtræti 29
Pósthússtræti 30
Pósthússtræti 31
Pósthússtræti 32
Pósthússtræti 33
Pósthússtræti 34
Pósthússtræti 35
Pósthússtræti 36
Pósthússtræti 37
Pósthússtræti 38
Pósthússtræti 39
Pósthússtræti 40
Pósthússtræti 41