Víðidalur 3
Eignin er björt, rúmgóð með gott skipulag, með fallegu flæði milli rýma og skjólgóðum suðurpalli með heitum potti.
Eignin hefur að geyma forstofu, 5 svefnherbergi, eldhús, stofu og borðstofu í opnu rými, sjónvarpshol, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Gólfsíðir gluggar eru í flestum rýmum sem hleypa skemmtilegri birtu inn.
Upplýsingar um eignina veitir:
Halla Vilbergs löggiltur fasteignasali, í síma 772-7930, tölvupóstur [email protected]
Elín Frímannsdóttir löggiltur fasteignasali,, í síma 867-4885, tölvupóstur elí[email protected]
Helstu kostir:
*** Einbýli á einni hæð
*** Fimm Svefnherbergi
*** Skjólgóður suðurpallur með heitum potti og úti eldhúsi.
*** Frábær staðsetning í rólegu og fjölskylduvænu hverfi
*** Stutt í skóla, leikskóla, verslanir, sund og líkamsrækt
*** Stílhreint og opið eldhús með hvítri innréttingu með ljósum viðar efri skápum og eyju
*** Rúmgóð hjónasvíta með fataherbergi og sér baðherbergi með baðkari.
Nánari lýsing eignar:
Anddyri: Flísalagt með góðum fataskápum. Innangengt í bílskúr.
Stofa og borðstofa: Björt og rúmgóð stofa með flísum á gólfi. Útgengt er á verönd með afgirtum timburpalli, heitum potti og úti eldhúsi.
Eldhús: Stílhreint og opið eldhús með innréttingu, neðri skápar háglans hvítir, efri ljós eik og eyju sem eykur vinnu- og geymslupláss. Flísar á gólfi og opið rými við stofu sem skapar skemmtilega heild.
Hjónaherbergi: Er rúmgott og bjart með sér fataherbergi og baðherbergi með baðkari. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi: Eru 4, reglulega rúmgóð með stórum gólfsíðum gluggum. Flísar eru á gólfum.
Baðherbergi: Smekklegt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Walk in sturta, upphengt salerni og snyrtileg innrétting.
Þvottahús: Þvottahús flísalagt, með úgengt út á pall.
Á lóð er einnig 15 fm geymsluskúr með rafmagni.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Sæki nálæga staði…
Áætlaður kaupkostnaður
— kr.
- Stimpilgjald
- 519.600 kr.
- Lántökugjald
- 0 kr.
- Þinglýsing skjala
- 3.800 kr.
- Umsýslugjald
- —
Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.
Umsýslugjald liggur ekki fyrir.
Lánareiknivél
Fyrsta greiðsla
488.833 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
536.090 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
346.422 kr.
Verðtryggt
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Arion banki
0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.
Arion lánar að 80%, eða 85% við fyrstu kaup. Verðtryggð lán eru að 70% veðsetningu og til mest 30 ára.
Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.
Vaxtatafla gildir frá 3. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.
Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026
Fleiri myndir












































