Asparholt 5
Falleg og björt fjögurra herbergja endaíbúð á þriðju og efstu hæð með sérinngangi. Íbúðin stendur á vinsælum og fjölskylduvænum stað á Álftanesi, þar sem grunnskóli, leikskóli og íþróttasvæði eru í næsta nágrenni. Úr alrýminu er gengið út á rúmgóðar, yfirbyggðar svalir til suðausturs.
Íbúðin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, samliggjandi stofu og eldhús í opnurými, geymslu innan íbúðar og yfirbyggðar svalir.
- Sérinngangur
- Rúmgóðar, yfirbyggðar svalir til suðausturs
- Möguleiki á þriðja svefnherbergi samkvæmt upprunalegri teikningu
- Þvottahús innan íbúðar
- 2 Sérmerkt bílastæði, annað með hleðslustöð
- Grunnskóli, leikskóli og íþróttasvæði í göngufæri
Nánari lýsing eignar
Forstofa: Flísar á gólfi.
Geymsla: Inn af forstofu er geymsla með flísum á gólfi og opnanlegum glugga. Það nýtist vel sem geymsla, vinnuherbergi eða aukasvefnherbergi.
Svefnherbergi: Tvö svefnherbergi, bæði með parketi á gólfi og fataskápum. ( möguleiki er að bæta þriðja svefnherbergi miðað við upprunalega skipulag)
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Þar er nýlegur sturtuklefi með nýjum blöndunartækjum frá Tengi. Falleg innrétting með vask og góðu skápaplássi. Upphengdur handklæðaofn og salerni.
Þvottaherbergi: Rúmgott sérþvottahús með flísum á gólfi.
Eldhús: Parket á gólfi og falleg U-laga innrétting, lökkuð fyrir um 6 árum og nýborðplata sett ásamt nýlegum tækjum.
Stofa: Rúmgóð og björt, með parketi á gólfi. Hún tengist eldhúsinu í opnu alrými og þaðan er gengið út á yfirbyggðarsvalirnar.
Svalir: Rúmgóðar og yfirbyggðar, til suðausturs. Fallegt útsýni.
Sérmerkt bílastæði er á bílaplani.
Hjólageymsla er í sameign á jarðhæð.
Staðsetning
Íbúðin er á barnvænum og rólegum stað á Álftanesi. Leikskóli, grunnskóli og íþróttasvæði eru í stuttu göngufæri, svo börnin komast sjálf í skóla og tómstundir. Stutt er í óspillta náttúru og strandlengju Álftaness, sem er tilvalin til útivistar.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Sæki nálæga staði…
Áætlaður kaupkostnaður
— kr.
- Stimpilgjald
- 343.600 kr.
- Lántökugjald
- 0 kr.
- Þinglýsing skjala
- 3.800 kr.
- Umsýslugjald
- —
Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.
Umsýslugjald liggur ekki fyrir.
Lánareiknivél
Fyrsta greiðsla
310.159 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
323.254 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
338.137 kr.
Óverðtryggt
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Landsbankinn
0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.
Verðtryggð lán eru aðeins í boði við fyrstu kaup, til 20 ára og að 85% veðsetningu. Óverðtryggð lán ná að 80%, eða 90% við fyrstu kaup.
Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.
Vaxtatafla gildir frá 1. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.
Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026
Fleiri myndir































