Grænaborg 16

190 Vogar | Fjölbýli
60.000.000 kr.
715 þ.kr./m2
3 svefnherbergi
1 baðherbergi
83.9 m2
Byggt 2024
Ertu með einhverjar spurningar?

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala kynnir í sölu eignina:
Grænaborg 16, 190 Vogar, nánar tiltekið íbúð merkt 04-02, fastanúmer 252-9436, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi. Samkvæmt skráningu FMR er birt stærð eignarinnar 83,9 fm.
Um er að ræða einstaklega vel skipulagða og bjarta íbúð á 4. hæð í fjögurra hæða fjölbýlishúsi, byggðu árið 2024. Lyfta er í húsinu og aðgengi því gott og þægilegt.

Íbúðin nýtist afar vel og telur þrjú svefnherbergi, geymslu innan íbúðar, flísalagt baðherbergi með þvottaaðstöðu og bjart og rúmgott alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda skemmtilega heild. Úr stofu er gengið út á svalir. Skipulag eignarinnar er sérlega fjölskylduvænt og staðsetningin góð í rólegu og vinalegu hverfi í Vogum.

** Eignin fæst afhent við kaupsamning **

Nánari lýsing
Forstofa: Parket á gólfi og góður forstofuskápur.
Eldhús: Snyrtileg og vel skipulögð innrétting með góðu skápa- og borðplássi. Innbyggð uppþvottavél, bakarofn, helluborð og ísskápur fylgja eigninni.
Stofa og borðstofa: Bjart og notalegt alrými með parketi á gólfi og góðum gluggum sem hleypa ríkulegri birtu inn. Úr stofu er beint útgengi á svalir.
Hjónaherbergi: Sérlega rúmgott herbergi með parketi á gólfi og stórum fataskáp.
Barnaherbergi I: Parket á gólfi og fataskápur.
Barnaherbergi II: Parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi / þvottaaðstaða: Flísalagt í hólf og gólf. Snyrtileg innrétting við vask, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta. Innréttuð aðstaða er fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Sérgeymsla er staðsett innan íbúðar og er með parketi á gólfi.

Helstu kostir eignarinnar
  • Lyfta í húsinu og gott, þægilegt aðgengi.
  • Þrjú svefnherbergi, öll með fataskápum.
  • Geymsla innan íbúðar með parketi á gólfi.
  • Eldhús með innbyggðum tækjum – uppþvottavél, bakarofn, helluborð og ísskápur fylgja eigninni.
  • Flísalagt baðherbergi með innréttaðri aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
  • Bjart og vel nýtt alrými með útgengi á svalir.
  • Fjölskylduvænt skipulag í nýlegu lyftuhúsi, byggðu árið 2024.
  • Björt, snyrtileg og einstaklega vel skipulögð fjölskylduíbúð í nýlegu lyftuhúsi í Vogum. Eign sem vert er að skoða!

Allar nánari upplýsingar og skoðunarbókanir veita:

Unnur Svava Sverrisdóttir, löggiltur fasteignasali
Sími: 868 2555. Netfang: [email protected]
Ásta María Jónasdóttir, löggiltur fasteignasali
Sími: 847 5746. Netfang: [email protected]

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ. Reykjavíkurvegi 66, 220 Hafnarfirði

Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Sæki nálæga staði…

Áætlaður kaupkostnaður

— kr.

Stimpilgjald
240.000 kr.
Lántökugjald
0 kr.
Þinglýsing skjala
3.800 kr.
Umsýslugjald
—

Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.

Umsýslugjald liggur ekki fyrir.

Lánareiknivél

kr.
kr.

Fyrsta greiðsla

216.642 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 1

Fyrsta greiðsla

225.789 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 2

Fyrsta greiðsla

236.184 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 3
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Landsbankinn

0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.

Verðtryggð lán eru aðeins í boði við fyrstu kaup, til 20 ára og að 85% veðsetningu. Óverðtryggð lán ná að 80%, eða 90% við fyrstu kaup.

Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.

Vaxtatafla gildir frá 1. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.

Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026

Fleiri myndir

Grænaborg 1
Grænaborg 2
Grænaborg 3
Grænaborg 4
Grænaborg 5
Grænaborg 6
Grænaborg 7
Grænaborg 8
Grænaborg 9
Grænaborg 10
Grænaborg 11
Grænaborg 12
Grænaborg 13
Grænaborg 14
Grænaborg 15
Grænaborg 16
Grænaborg 17
Grænaborg 18
Grænaborg 19
Grænaborg 20
Grænaborg 21
Grænaborg 22
Grænaborg 23