Grænaborg 16
Rúmgóð og vel skipulögð fimm herbergja íbúð á þriðju hæð í nýlegu og viðhaldsléttu fjölbýlishúsi í Grænubyggð í Vogum. Húsið er steinsteypt og klætt að utan. Íbúðin var byggð árið 2024 og í henni eru fjögur svefnherbergi. Eldhús, borðstofa og stofa mynda bjart og opið alrými, og þaðan er gengið út á svalir. Baðherbergi með þvottaaðstöðu og sérgeymsla innan íbúðar.
Nánari upplýsingar veita:
Dísa Edwards Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5510, tölvupóstur [email protected]
Jóna Björg Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5506, tölvupóstur [email protected].
Nánari lýsing eignar.
Anddyri: Anddyrið er rúmgott með parket á gólfi og forstofuskáp.
Eldhús er í opnu alrými við stofu með parket á gólfi, fallegri dökkri innréttingu og hvítum efri skápum,
Hjónaherbergið hefur parket á gólfi og er með fataskápum.
Svefnherbergin eru þrjú. Parket á gólfi og fatakskápar í þeim öllum.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, hvít innrétting með handlaug, upphengdur handklæðaofn og salerni, walk in sturta og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa er í opnu rými með eldhúsi. Úr stofu er gengið út á verönd.
Sameign: Íbúðinni fylgir hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu og tæknirými, auk tilheyrandi lóðar- og sameignarréttinda.
Grænaborg 16 er steinsteypt fjölbýlishús, byggt árið 2024, og klætt að utan, sem gerir það viðhaldslétt. Húsið stendur í Grænubyggð, nýju og vaxandi hverfi í Vogum.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Sæki nálæga staði…
Áætlaður kaupkostnaður
— kr.
- Stimpilgjald
- 278.000 kr.
- Lántökugjald
- 0 kr.
- Þinglýsing skjala
- 3.800 kr.
- Umsýslugjald
- —
Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.
Umsýslugjald liggur ekki fyrir.
Lánareiknivél
Fyrsta greiðsla
250.943 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
261.539 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
273.580 kr.
Óverðtryggt
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Landsbankinn
0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.
Verðtryggð lán eru aðeins í boði við fyrstu kaup, til 20 ára og að 85% veðsetningu. Óverðtryggð lán ná að 80%, eða 90% við fyrstu kaup.
Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.
Vaxtatafla gildir frá 1. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.
Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026
Fleiri myndir



































