Grænaborg 14
Fimm herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi, staðsett við Grænaborg 14 í Grænubyggð í Vogum. Um er að ræða endaíbúð í 12 íbúða fjölbýlishúsi.
Fjölbýlishúsið er byggt á vandaðan máta, vel einangrað og klætt að utan með varanlegri álklæðningu. Arkís sá um hönnun verksins og er húsið afar glæsilegt.
** Sérinngangur
** 4 svefnherbergi
** Verönd til suðurs
** Bílaplan með aðgengi að hleðslustöð
** Hönnun frá Arkís, varanleg álklæðning að utan
Skipulag: Anddyri, hol, baðherbergi með þvottaaðstöðu, fjögur svefnherbergi, eldhús og stofa. Vandað parket er á gólfum og flísar á votrýmum.
Nánari upplýsingar veita:
Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5524, tölvupóstur [email protected].
Ásgeir Þór Ásgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 772-0102, tölvupóstur [email protected].
Nánari lýsing eignar
Forstofa er með fataskáp ásamt fatahengi.
Eldhúsið er með fallegri innréttingu og rúmgóðri eyju sem hægt er að sitja við. Vönduð heimilistæki fylgja og gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Baðherbergið er með flísalögðu gólfi og hluta veggja, walk-in sturtu, hvítri innréttingu og tengjum fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergið er með fataskáp.
Barnaherbergin eru þrjú talsins. Eitt þeirra er teiknað sem geymsla (með glugga) og því auðvelt að nýta sem fjórða svefnherbergið.
Staðsetning
Um er að ræða vel staðsetta endaíbúð á góðum stað í Vogum, með tyrfðri lóð, svölum í suður og bílaplani með aðgengi að hleðslustöð. Stutt er í alla helstu þjónustu, s.s. verslun, grunn- og leikskóla, íþróttamiðstöð og sundlaug.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Sæki nálæga staði…
Áætlaður kaupkostnaður
— kr.
- Stimpilgjald
- 263.600 kr.
- Lántökugjald
- 0 kr.
- Þinglýsing skjala
- 3.800 kr.
- Umsýslugjald
- —
Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.
Umsýslugjald liggur ekki fyrir.
Lánareiknivél
Fyrsta greiðsla
240.447 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
247.991 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
267.082 kr.
Óverðtryggt
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Íslandsbanki
0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.
Yfir 80% veðsetningu bætist við óverðtryggt aukalán til mest 10 ára á 11,35% vöxtum, að hámarki 7 m.kr. og 90% heildarveðsetningu við fyrstu kaup.
Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.
Vaxtatafla gildir frá 3. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.
Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026
Fleiri myndir


































