Staðarborg 24D

190 Vogar | Raðhús
86.600.000 kr.
661 þ.kr./m2
4 svefnherbergi
2 baðherbergi
131.1 m2
Byggt 2023
Ertu með einhverjar spurningar?

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Staðarborg 24, 190 Vogar, birt stærð 131.1 fm.  
Fimm herbergja endaraðhús við Staðarborg 24A í Grænubyggð – nýju og spennandi fjölskylduhverfi við sjávarsíðuna í Vogum á Vatnsleysuströnd, aðeins um 15 mínútna akstur frá höfuðborgarsvæðinu.

Húsið býður upp á óheft sjávarútsýni af efri hæð, sérlega gott og hagkvæmt skipulag sem hentar fjölskyldum einstaklega vel, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, sér þvottahús, bjart og rúmgott alrými og sér garð með lögnum fyrir heitan og kaldan pott.

** Óheft sjávarútsýni af efri hæð
** 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, sér þvottahús
** Lagnir fyrir heitan og kaldan pott í garði
** Aðeins 15 mín frá höfuðborgarsvæðinu


Nánari upplýsingar veita:
Dísa Edwards Löggiltur Fasteignasali, í síma 560-5510, tölvupóstur [email protected]
Jóna Björg Jónsdóttir Löggiltur Fasteignasali, í síma 560-5506, tölvupóstur [email protected]


Nánari lýsing eignar
Jarðhæð
Forstofa er rúmgóð þar sem svefnherbergi ( I ) er staðsett innaf.
Gestasalerni er flísalagt á gólfi og veggjum upp í loft, með upphengdu salerni, hvítri innréttingu og handklæðaofni.
Alrými er opið og rúmgott og samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi. Aukin lofthæð er yfir hluta rýmisins og fallegir gluggar á báðum hæðum hleypa birtunni inn. Út frá stofu er gengið í sér garð með tengjum fyrir heitan og kaldan pott, og fallega hannaður skjólveggur skilur að íbúðir.
Eldhúsið er með glæsilegri innréttingu frá Parka sem nær upp í loft, með eyju og fallegum háf. Kvarssteinn er á borðum, undirfelldur vaskur, og innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja. Eldhústæki eru frá Electrolux.
Milli hæða liggur glæsilegur stigi úr aski sem setur fallegan svip á rýmið.

Efri hæð
Rúmgott hjónaherbergi með útgengi á vestursvalir og glæsilegu sjávarútsýni, ( II ) 
Svefnherbergin eru tvö (III og IV).
Baðherbergið er flísalagt á gólfi og veggjum upp í loft, með sturtu og sturtugleri, upphengdu salerni, hvítri innréttingu og handklæðaofni.
Sér þvottaherbergi er einnig flísalagt á gólfi og veggjum upp í loft.
Útigeymsla fylgir eigninni framan við hús, sem er utan birtra fermetra.

Verið velkomin í Grænabyggð – Vogum — þar sem lífsgæði mæta náttúrunni!
Í hjarta fjölskylduvæns hverfis í sveitafélaginu Vogar bíður þessi íbúð eftir nýjum eigendum. Grænabyggð og samfélagið státar af öflugri menntun fyrir börn og ungmenni, með áformum um nýjan leikskóla og stækkun grunnskóla á svæðinu. Íþróttafélagið Þróttur býður upp á fjölbreytt tómstundastarf og nálægð við strandlengju, gönguleiðir og golfvöll gefur færi á heilbrigðum lífsstíl allt árið um kring. Aðeins er um 10 – 15 mínútna akstur á höfðuborgarsvæðið, Bláa lónið og Keflavíkurflugvöll. Þetta er tækifæri til að fjárfesta í framtíðinni — bæði fyrir heimilið og lífið sjálft. Vertu í sambandi við okkur og bókaður skoðun, ALLT fyrir þig.


Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Sæki nálæga staði…

Áætlaður kaupkostnaður

— kr.

Stimpilgjald
346.400 kr.
Lántökugjald
0 kr.
Þinglýsing skjala
3.800 kr.
Umsýslugjald
—

Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.

Umsýslugjald liggur ekki fyrir.

Lánareiknivél

kr.
kr.

Fyrsta greiðsla

325.888 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 1

Fyrsta greiðsla

357.393 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 2

Fyrsta greiðsla

230.948 kr.

Verðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 3

Miðað við 0% ársverðbólgu. Verðbætur hækka höfuðstól og greiðslur.

Forsendur og vaxtaupplýsingar · Arion banki

0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.

Arion lánar að 80%, eða 85% við fyrstu kaup. Verðtryggð lán eru að 70% veðsetningu og til mest 30 ára.

Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.

Vaxtatafla gildir frá 3. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.

Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026

Fleiri myndir

Staðarborg 1
Staðarborg 2
Staðarborg 3
Staðarborg 4
Staðarborg 5
Staðarborg 6
Staðarborg 7
Staðarborg 8
Staðarborg 9
Staðarborg 10
Staðarborg 11
Staðarborg 12
Staðarborg 13
Staðarborg 14
Staðarborg 15
Staðarborg 16
Staðarborg 17
Staðarborg 18
Staðarborg 19
Staðarborg 20
Staðarborg 21
Staðarborg 22
Staðarborg 23
Staðarborg 24
Staðarborg 25
Staðarborg 26
Staðarborg 27
Staðarborg 28
Staðarborg 29
Staðarborg 30
Staðarborg 31
Staðarborg 32
Staðarborg 33
Staðarborg 34
Staðarborg 35
Staðarborg 36
Staðarborg 37
Staðarborg 38
Staðarborg 39
Staðarborg 40
Staðarborg 41
Staðarborg 42
Staðarborg 43
Staðarborg 44
Staðarborg 45
Staðarborg 46