Asparlaut 5
Asparlaut 5, 230 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-02, fastanúmer 252-9341 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR, birt stærð 79.7 fm.
Virkilega falleg eign á fyrstu hæð. BÓKIÐ EINKASKOÐUN
Nánari upplýsingar veitir: Unnur Svava Sverrisdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 868-2555, tölvupóstur [email protected].
Eldhús/borðstofa og stofa: Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðaðar frá GKS. Eldhúsvaskur og blöndunartæki fylgja frá GKS. Bora helluborð með innbyggðu sogi, ofn með blæstri, örbylgjuofn, innbyggð uppþvottavél og innbyggður kæliskápur frá Siemens. Virkilega bjart og fallegt rými með innbyggðri lýsingu í loftum, með dimmerum.
Hjónaherbergi er með sérsmíðuðum klæðaskápum frá GKS.
Baðherbergi: Á baðherbergi eru flísar frá Flísabúðinni á gólfi og veggjum, innrétting frá GKS. Handlaugarskál með hitastýrðu blöndunartæki, upphengt og innbyggt salerni með hæglokandi setu. Sturta skilast með innbyggðum blöndunartækjum og sturtuhlið úr gleri.
Anddyri: Mjög með sérsmíðuðum klæðaskápum frá GKS
Þvottahús: Gólf flísalagt, innréttingar frá GKS með ræstivaski og blöndunartæki í borði. Niðurfall í gólfi, tengingar fyrir þvottavél og barkalausan þurrkara.
Geymsla í séreign sem fylgir íbúðinni, Rúmgóð vagna og hjólageymsla í sameign.
Umhverfi: Umhverfið um eignina er mjög skemmtilegt með skjólgóðu miðjusvæði fyrir íbúa. Eignin er í göngufæri við alla helstu þjónustu og öll helstu íþróttamannvirki, fjölbrautaskóla og útivistarsvæði. Um 25 mínútur frá höfuðborgarsvæði og 5 mínútur frá Flugstöð.
* Innihurðir eru yfirfelldar frá Birgison / Parka
* Útihurðir frá Rational
* Íbúðirnar eru upphitaðar með ofnakerfum
* Loftræsti-, vatns,- og þrifalagnir fylgja frágengnar. Forhitari er á heitu neysluvatni
* Póstkassar verða í stigahúsi
* Fólkslyfta er í húsinu af gerðinni Mono Space frá Kone
* Bílgeymsla er í opnu bílskýli á milli húsa, gólf steypt og vélslípað og bílastæði merkt
* Sorpgeymsla verður á sérmerktu svæði á lóðinni
* Það er með tvöföldu lagi af eldsoðnum tjörupappa ofan á steypta plötu. Einangrun er 200mm rakavarin þrýsti einangrun.
* Útiljós og rafmagnstengill er á öllum svölum
* Lóð verður fullfrágengin. Stéttar næst húsi verða hellulagðar og snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið. Bílastæði eru malbikuð og eða hellulögð.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Sæki nálæga staði…
Áætlaður kaupkostnaður
— kr.
- Stimpilgjald
- 239.600 kr.
- Lántökugjald
- 0 kr.
- Þinglýsing skjala
- 3.800 kr.
- Umsýslugjald
- —
Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.
Umsýslugjald liggur ekki fyrir.
Lánareiknivél
Fyrsta greiðsla
225.412 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
247.204 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
159.743 kr.
Verðtryggt
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Arion banki
0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.
Arion lánar að 80%, eða 85% við fyrstu kaup. Verðtryggð lán eru að 70% veðsetningu og til mest 30 ára.
Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.
Vaxtatafla gildir frá 3. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.
Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026
Fleiri myndir

















