Iðavellir 11

230 Reykjanesbær | Atvinnuhúsnæði
45.700.000 kr.
374 þ.kr./m2
0 svefnherbergi
3 baðherbergi
122.1 m2
Byggt 2002
Ertu með einhverjar spurningar?

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu gott og vel skipulagt atvinnu-/iðnaðarhúsnæði að Iðavöllum 11B, 230 Reykjanesbæ.

Um er að ræða 122,1 fm atvinnuhúsnæði með rúmgóðu verkstæðisrými á jarðhæð og efri hæð yfir hluta húsnæðisins. Eignin býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika og góða aðstöðu fyrir rekstur, með innkeyrslu í verkstæði, eldhús-/kaffiaðstöðu, skrifstofurými, setustofu/starfsmannaaðstöðu, geymslurými, þremur salernum og sturtuaðstöðu.
Húsnæðið hentar vel undir ýmiss konar verkstæðis-, þjónustu-, lager- eða létta iðnaðarstarfsemi. Staðsetningin er góð á öflugu atvinnusvæði í Reykjanesbæ, með greiðri aðkomu og stuttri akstursleið að Keflavíkurflugvelli og Reykjanesbraut.


Nánari upplýsingar veitir:
Halla Vilbergsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 772-7930, tölvupóstur [email protected].


*** 122,1 fm atvinnu-/iðnaðarhúsnæði.
*** Rúmgott verkstæðisrými á jarðhæð.
*** Innkeyrsluhurð inn í verkstæði.
*** Efri hæð yfir hluta húsnæðisins.
*** Góð skrifstofu- og starfsmannaaðstaða.
*** Eldhús-/kaffiaðstaða.
*** Parketlögð setustofa á efri hæð.
*** Þrjú salerni, þar af eitt með sturtuaðstöðu.
*** Geymslurými.
*** Fjölbreyttir nýtingarmöguleikar.
*** Góð staðsetning og stutt að Keflavíkurflugvelli og Reykjanesbraut.



Nánari lýsing eignar:
Verkstæði: Rúmgott verkstæðis-/vinnurými á jarðhæð með innkeyrsluhurð. Rýmið býður upp á góða möguleika fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi og nýtist vel sem verkstæði, vinnusalur eða lager.
Eldhús-/kaffiaðstaða: Inn af verkstæðinu er góð eldhús- og kaffiaðstaða með innréttingu, vaski og tækjum. Þar er jafnframt gott rými fyrir matar- og setuaðstöðu. Ljóst plastparket er á gólfi.
Salernisaðstaða – neðri hæð: Á neðri hæð eru tvö salerni. Annað þeirra er með sturtuaðstöðu og er votrými flísalagt. Hitt er hefðbundið salerni.

Efri hæð: Gengið er upp hringstiga frá neðri hæð á efri hæð sem er yfir hluta húsnæðisins. Þar er góð og snyrtileg skrifstofu- og starfsmannaaðstaða.
Setustofa/starfsmannaaðstaða: Parketlögð setustofa sem nýtist vel sem starfsmannaaðstaða og kaffistofa.
Skrifstofurými: Gott skrifstofurými er á efri hæð og hentar vel fyrir daglegan rekstur samhliða starfsemi í verkstæðisrýminu.
Salerni – efri hæð: Salernisaðstaða er á efri hæð.
Geymsla: Geymslurými er á efri hæð ásamt frekari stoðaðstöðu innan eignarinnar.

Staðsetning:
Iðavellir 11B er vel staðsett á rótgrónu og öflugu atvinnusvæði í Reykjanesbæ þar sem fjölbreytt atvinnu-, iðnaðar- og þjónustustarfsemi er í næsta nágrenni. Staðsetningin hentar sérstaklega vel fyrirtækjum sem vilja góða tengingu við Keflavíkurflugvöll og helstu samgönguæðar á Suðurnesjum.
Stutt er að Keflavíkurflugvelli og greið leið inn á Reykjanesbraut með góðum tengingum áfram til höfuðborgarsvæðisins.
Um er að ræða vel skipulagt og fjölhæft atvinnuhúsnæði þar sem rúmgott verkstæðisrými og góð skrifstofu- og starfsmannaaðstaða fara vel saman. Eign sem getur hentað fjölbreyttri atvinnustarfsemi og er vel staðsett með tilliti til samgangna.

 Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Sæki nálæga staði…

Áætlaður kaupkostnaður

— kr.

Stimpilgjald
182.800 kr.
Lántökugjald
0 kr.
Þinglýsing skjala
3.800 kr.
Umsýslugjald
—

Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.

Umsýslugjald liggur ekki fyrir.

Lánareiknivél

kr.
kr.

Fyrsta greiðsla

171.976 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 1

Fyrsta greiðsla

188.601 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 2

Fyrsta greiðsla

121.874 kr.

Verðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 3

Miðað við 0% ársverðbólgu. Verðbætur hækka höfuðstól og greiðslur.

Forsendur og vaxtaupplýsingar · Arion banki

0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.

Arion lánar að 80%, eða 85% við fyrstu kaup. Verðtryggð lán eru að 70% veðsetningu og til mest 30 ára.

Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.

Vaxtatafla gildir frá 3. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.

Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026

Fleiri myndir

Iðavellir 1
Iðavellir 2
Iðavellir 3
Iðavellir 4
Iðavellir 5
Iðavellir 6
Iðavellir 7
Iðavellir 8
Iðavellir 9
Iðavellir 10
Iðavellir 11
Iðavellir 12
Iðavellir 13
Iðavellir 14
Iðavellir 15
Iðavellir 16
Iðavellir 17
Iðavellir 18
Iðavellir 19
Iðavellir 20