Laufengi 108
Um er að ræða bjarta og vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á jarðhæð, með sérinngangi og sérgarði sem snýr til suðausturs.
Skipulag eignarinnar er hagkvæmt og gott. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, rúmgóða stofu og borðstofu, svefnherbergi, baðherbergi með tengjum fyrir þvottavél og þurrkara ásamt sérgeymslu. Sérmerkt bílastæði fylgir eigninni.
Nánari upplýsingar veitir/veita: Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 7719820, tölvupóstur [email protected].
Nánari lýsing eignar:
Sérinngangur er inn í rúmgott anddyri með flísum á gólfi, fataskáp og fatahengi.
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar, með parketi á gólfi og góðu flæði inn í eldhúsið. Úr stofu er gengið út á verönd og í sérgarð sem snýr til suðausturs.
Eldhús er opið inn í borðstofu og er með hvítri innréttingu, eldavél með keramikhelluborði, tengi fyrir uppþvottavél og plássi fyrir ísskáp.
Svefnherbergið er rúmgott, með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Baðherbergið er rúmgott og með sturtuklefa, innréttingu og tengjum fyrir þvottavél og þurrkara.
Sér geymsla í sameign ásamt hjólageymslu, auk þess sem eigninni fylgir sérmerkt bílastæði.
Eignin er vel staðsett á besta stað í Grafarvogi þar sem stutt er í fallegar gönguleiðir, Egilshöll, skóla-og leiksskóla, golfvöll og aðra þjónustu.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Sæki nálæga staði…
Áætlaður kaupkostnaður
— kr.
- Stimpilgjald
- 239.600 kr.
- Lántökugjald
- 0 kr.
- Þinglýsing skjala
- 3.800 kr.
- Umsýslugjald
- —
Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.
Umsýslugjald liggur ekki fyrir.
Lánareiknivél
Fyrsta greiðsla
216.281 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
225.412 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
235.790 kr.
Óverðtryggt
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Landsbankinn
0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.
Verðtryggð lán eru aðeins í boði við fyrstu kaup, til 20 ára og að 85% veðsetningu. Óverðtryggð lán ná að 80%, eða 90% við fyrstu kaup.
Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.
Vaxtatafla gildir frá 1. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.
Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026
Fleiri myndir























