Akurbraut 38

260 Reykjanesbær | Raðhús
81.900.000 kr.
788 þ.kr./m2
3 svefnherbergi
1 baðherbergi
104 m2
Byggt 2007
Ertu með einhverjar spurningar?

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu: Virkilega fallegt, bjart og vel við haldið raðhús í einstakri nálægð við náttúruna. Þrjú svefnherbergi, afgirtur sólpallur með heitum potti, bílskúr og snjóbræðsla í bílaplani fyrir 4 bíla.

Akurbraut 38, 260 Reykjanesbæ, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 228-7009 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR, birt stærð 133.7 fm.

** Seljendur skoða skipti á stærri eign **

Nánari upplýsingar og söluyfirlit veitir: Unnur Svava Sverrisdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 868-2555, tölvupóstur [email protected].

Nánari lýsing:
Forstofa er flísalögð með góðum klæðaskáp.
Innangengt er úr forstofu inn í flíslagt þvottahús og þaðan inn í bílskúr með góðu millilofti.
Bílskúr er teppalagður.
Eldhús er með fallegri innréttingu og flísum á gólfi, þaðan er útgengt út í framgarð og sjávarútsýni.
Stofa / borðstofa / sjónvarpshol og sólstofa í opnu rými með nýlegu parketi á gólfi og flísum á sólstofu.
Úr sólstofu er útgengt út á stóran afgirtan sólpall sem snýr til suðurs, þar er heitur pottur og útigeymsla.
Hurð er á sólpalli til að komast út á grænt svæði.
Grasblettur við hlið sólpalls fylgir eign.
Svefnherbergi er inn af sólstofu með parket á gólfi og góðum glugga, var áður herbergi inn af bílskúr.
Baðherbergi er flísalagt í hólf í gólf með fallegri innréttinu og sturtu.
Svefnherbergi á herbergisgangi með parket á gólfi.
Hjónaherbergi hefur parket á gólfi og góða klæðaskápa.
Góð lóð að framanverðu húsi sem býður upp á ýmsa möguleika.
Bílaplan með snjóbræðslu  fyrir framan húsið og stæði fyrir 4 bíla.

Framkvæmdir sem hefur verið farið í undanfarin 3 ár:
* Nýtt parket lagt af fagmanni árið 2025 á öll rými nema sólhús og bað, ásamt undirlagi og gólflistum. Nýir klæðaskápar.
* Mótorlokar í dreifikistu hafa verið uppfærðir eftir þörfum og loki á handklæðaofni hefur verið endurnýjaður.
* Hurðargat í léttvegg við bílskúrsherbergið lokað af fagmanni
* Nýr bílskúrsmótor, tvær fjarstýringar, settur upp af sérfræðing bílskúrshurða
* Bílskúr teppalagður af fagmanni
* Listi á/undir bílskúrshurð skipt út af fagmanni
* Uppþvottavél endurnýjuð í eldhúsi
* Búið er að þrýstimæla bað og barnaherbergi. Gólfhitakista er í lagi og það er góður hiti í húsinu.
* Fúga og kítti í sturturými endurnýjað af fagmanni
* Útikrani endurnýjaður af fagmanni
* Einn nýlegur gluggi í sólstofu, útfært af fagmanni
Júní 2026 - Pallur þveginn og olíuborin, bæði dekk og skjólveggir. Ruslatunnuskýli olíuborin
Júní 2026 - Ný blöndunartæki í sturtu og sturtuhausar, útfært af fagmanni
September 2026 - Útihurðar norður málaðar
September 2026 - Vatnsbretti úti við sólstofu endurnýjað, verður lokið fyrir afhendingu
September 2026 - Nýjar lamir á þvottahúsglugga, verður lokið fyrir afhendingu

Falleg eign í góðu hverfi, falleg útivistarsvæði og gönguleiðir meðfram hafinu, í göngufæri við leik- og grunnskóla, sundlaug, verslun og bakarí.

Eignin er í um 20 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæði.



Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Sæki nálæga staði…

Áætlaður kaupkostnaður

— kr.

Stimpilgjald
327.600 kr.
Lántökugjald
0 kr.
Þinglýsing skjala
3.800 kr.
Umsýslugjald
—

Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.

Umsýslugjald liggur ekki fyrir.

Lánareiknivél

kr.
kr.

Fyrsta greiðsla

295.716 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 1

Fyrsta greiðsla

308.202 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 2

Fyrsta greiðsla

322.391 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 3
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Landsbankinn

0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.

Verðtryggð lán eru aðeins í boði við fyrstu kaup, til 20 ára og að 85% veðsetningu. Óverðtryggð lán ná að 80%, eða 90% við fyrstu kaup.

Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.

Vaxtatafla gildir frá 1. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.

Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026

Fleiri myndir

Akurbraut 1
Akurbraut 2
Akurbraut 3
Akurbraut 4
Akurbraut 5
Akurbraut 6
Akurbraut 7
Akurbraut 8
Akurbraut 9
Akurbraut 10
Akurbraut 11
Akurbraut 12
Akurbraut 13
Akurbraut 14
Akurbraut 15
Akurbraut 16
Akurbraut 17
Akurbraut 18
Akurbraut 19
Akurbraut 20
Akurbraut 21
Akurbraut 22
Akurbraut 23
Akurbraut 24
Akurbraut 25
Akurbraut 26
Akurbraut 27
Akurbraut 28
Akurbraut 29
Akurbraut 30
Akurbraut 31
Akurbraut 32
Akurbraut 33
Akurbraut 34
Akurbraut 35
Akurbraut 36