Drangsskarð 15
Um er að ræða glæsilega og nýlega fjögurra herbergja íbúð í 7 íbúða klasahúsi með sérinngangi á frábærum stað við Drangsskarð 15 í Skarðshlíðarhverfinu í Hafnarfirði. Íbúðinni fylgir rúmgóður sérafnotaflötur sem snýr til vesturs, auk merkts bílastæðis með rafhleðslustöð. Stutt er í skóla og leikskóla.
Seljendur skoða skipti á rað/par/einbýli í Reykjanesbæ
** Sérinngangur
** Sérafnotaflötur til vesturs
** Merkt bílastæði m/ rafhleðslutengingu
** Innréttingar frá HTH
** Þrjú svefnherbergi
Nánari upplýsingar veitir/veita: Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5524, tölvupóstur [email protected].
Nánari lýsing eignar.
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhúsið er með smekklegri innréttingu frá HTH og vönduðum eldunartækjum, þar á meðal innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Stofan og borðstofan eru björt og rúmgóð með parket á gólfi, þaðan er gengið beint út á rúmgóðan sérafnotaflöt sem snýr til vesturs.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með fataskápum og rúmgóð.
Baðherbergið er flísalagt með innréttingu, upphengdu salerni og sturtu, og þar er einnig tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sér geymsla er innan íbúðar.
Skarðshlíðarhverfið er vinsælt fjölskylduhverfi í Hafnarfirði þar sem stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.
Íbúðin er í skemmtilegu 7 íbúða klasahúsi sem sannarlega er vert að skoða. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er við íbúðina, auk merkts bílastæðis með rafhleðslustöð.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Sæki nálæga staði…
Áætlaður kaupkostnaður
— kr.
- Stimpilgjald
- 359.600 kr.
- Lántökugjald
- 0 kr.
- Þinglýsing skjala
- 3.800 kr.
- Umsýslugjald
- —
Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.
Umsýslugjald liggur ekki fyrir.
Lánareiknivél
Fyrsta greiðsla
324.602 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
338.307 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
353.882 kr.
Óverðtryggt
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Landsbankinn
0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.
Verðtryggð lán eru aðeins í boði við fyrstu kaup, til 20 ára og að 85% veðsetningu. Óverðtryggð lán ná að 80%, eða 90% við fyrstu kaup.
Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.
Vaxtatafla gildir frá 1. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.
Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026
Fleiri myndir




























