Silfurtún 8
Falleg 3ja herbergja jarðhæð með rúmgóðum sólpalli, sér geymsluskúr og tveimur merktum bílastæðum með rafhleðslustöð á vinsælum stað í Garðinum.
Um er að ræða einstaklega vel skipulagða og bjarta íbúð á rólegum og fjölskylduvænum stað. Eignin býður upp á tvö rúmgóð svefnherbergi, opið og bjart alrými, suðvestur sólpall, sér geymsluskúr og tvö merkt bílastæði, þar af eitt með rafhleðslustöð. Tilvalin fyrstu kaup.
Nánari upplýsingar veitir/veita:
Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5524, tölvupóstur [email protected].
Haukur Andreasson Löggiltur fasteignasali, í síma 866-9954, tölvupóstur [email protected].
Nánari lýsing
Forstofa er með flísum á gólfi og gólfhita sem veitir aukin þægindi.
Barnaherbergi er með parketi á gólfi og rennihurð sem nýtir rýmið vel.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús er opið og vel skipulagt með fallegri eikarinnréttingu, innbyggðum ísskáp og rúmgóðum borðkrók.
Stofa og borðstofa mynda bjart rými með útgengi út á rúmgóðan sólpall sem snýr til suðvesturs.
Baðherbergi er flísalagt með gólfhita, hvítri innréttingu, handklæðaofni og sturtu.
Þvottahús er sér með tengi fyrir þvottavél og þurrkara í góðri vinnuhæð, vaski og góðu geymsluplássi.
Geymsluskúr er 7,2 fm.
Eigninni fylgja tvö merkt bílastæði, rafhleðslustöð í stæði.
Staðsetning
Vinsæl staðsetning í Garði þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, íþróttamiðstöð, verslun og aðra helstu þjónustu. Einnig er stutt í falleg útivistarsvæði sem gera staðsetninguna einstaklega aðlaðandi fyrir fjölskyldufólk og útivistarsinna.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Sæki nálæga staði…
Áætlaður kaupkostnaður
— kr.
- Stimpilgjald
- 223.600 kr.
- Lántökugjald
- 0 kr.
- Þinglýsing skjala
- 3.800 kr.
- Umsýslugjald
- —
Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.
Umsýslugjald liggur ekki fyrir.
Lánareiknivél
Fyrsta greiðsla
203.960 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
210.360 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
226.554 kr.
Óverðtryggt
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Íslandsbanki
0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.
Yfir 80% veðsetningu bætist við óverðtryggt aukalán til mest 10 ára á 11,35% vöxtum, að hámarki 7 m.kr. og 90% heildarveðsetningu við fyrstu kaup.
Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.
Vaxtatafla gildir frá 3. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.
Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026
Fleiri myndir
































