Háseyla 35 Auka íbúð

260 Reykjanesbær | Einbýli
123.900.000 kr.
745 þ.kr./m2
4 svefnherbergi
2 baðherbergi
166.4 m2
Byggt 1983
Ertu með einhverjar spurningar?

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina að Háseylu 35 í Reykjanesbæ, rúmgott sex herbergja einbýlishús á einni hæð með bílskúr og aukaíbúð. Eignin er samtals 257,1 fm samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands og stendur á fjölskylduvænum stað þar sem leikskóli og grunnskóli eru í göngufæri.
Samkvæmt Þjóðskrá skiptist eignin í 166,4 fm íbúðarhúsnæði, 60,4 fm bílskúr og 30,3 fm íbúð með sérinngangi aftan við bílskúr. Aukaíbúðin býður upp á góða útleigumöguleika eða fjölbreytta nýtingu eftir þörfum nýrra eigenda.

Skipulag eignarinnar er forstofa, eldhús, stofa og borðstofa, baðherbergi, hol, fjögur svefnherbergi, þvottahús, bílskúr og aukaíbúð.
Eignin hefur fengið gott viðhald á síðustu árum. Skipt hefur verið um þakjárn, þakkanta og rennur auk þess sem hluti glugga hefur verið endurnýjaður. Árið 2021 var húsið pússað og málað að utan, nýr bílskúr ásamt aukaíbúð byggður og bílaplan fullfrágengið.



Nánari upplýsingar veita:
Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5521, tölvupóstur
 [email protected]
Jóna Björg Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5506, tölvupóstur [email protected]

Nánari lýsing eignar:
Forstofa
er flísalögð með hvítum fataskáp og þaðan er aðgengi að einu svefnherbergi.
Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu og harðparketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í björtu og opnu rými með útgengi út á stóran sólpall. Hol tengir saman alrými og svefnherbergisálmu eignarinnar og er flísalagt.
Baðherbergi er með upphengdu salerni, sturtu og góðri innréttingu ásamt flísum á gólfi og við sturtusvæði.
Svefnherbergin eru fjögur talsins, þar af rúmgott hjónaherbergi með fataskáp, öll herbergin eru með harðparketi.
Þvottahús er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúrinn er rúmgóður með vinnuborði, skolvaski og sjálfvirkum hurðaopnara. Aftan við bílskúrinn er aukaíbúð með sérinngangi.

Við húsið er stór og skjólgóður sólpallur með heitum potti og kaldri útigeymslu. Fyrir framan húsið er steypt bílaplan og hellulagt aðgengi.
Um er að ræða vel skipulagða og fjölskylduvæna eign á vinsælum stað í Reykjanesbæ með fjölbreyttum nýtingarmöguleikum og góðum útleigu möguleikum.

* Þakjárn, þakkantur og þakrennur - 2019
* Skipt um glugga að hluta 2019/2020
* Hús pússað og málað að utan - 2021
* Bílskúr og íbúð í skúr byggt - 2021


Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Sæki nálæga staði…

Áætlaður kaupkostnaður

— kr.

Stimpilgjald
495.600 kr.
Lántökugjald
0 kr.
Þinglýsing skjala
3.800 kr.
Umsýslugjald
—

Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.

Umsýslugjald liggur ekki fyrir.

Lánareiknivél

kr.
kr.

Fyrsta greiðsla

447.365 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 1

Fyrsta greiðsla

466.254 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 2

Fyrsta greiðsla

487.720 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 3
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Landsbankinn

0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.

Verðtryggð lán eru aðeins í boði við fyrstu kaup, til 20 ára og að 85% veðsetningu. Óverðtryggð lán ná að 80%, eða 90% við fyrstu kaup.

Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.

Vaxtatafla gildir frá 1. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.

Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026

Fleiri myndir

Háseyla 35 1
Háseyla 35 2
Háseyla 35 3
Háseyla 35 4
Háseyla 35 5
Háseyla 35 6
Háseyla 35 7
Háseyla 35 8
Háseyla 35 9
Háseyla 35 10
Háseyla 35 11
Háseyla 35 12
Háseyla 35 13
Háseyla 35 14
Háseyla 35 15
Háseyla 35 16
Háseyla 35 17
Háseyla 35 18
Háseyla 35 19
Háseyla 35 20
Háseyla 35 21
Háseyla 35 22
Háseyla 35 23
Háseyla 35 24
Háseyla 35 25
Háseyla 35 26
Háseyla 35 27
Háseyla 35 28
Háseyla 35 29
Háseyla 35 30
Háseyla 35 31
Háseyla 35 32
Háseyla 35 33
Háseyla 35 34
Háseyla 35 35
Háseyla 35 36
Háseyla 35 37