Suðurgata 28

230 Reykjanesbær | Hæð
58.900.000 kr.
751 þ.kr./m2
2 svefnherbergi
1 baðherbergi
78.4 m2
Byggt 1945
Ertu með einhverjar spurningar?

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:
Suðurgata 28, 230 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 209-0717 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. .

Um er að ræða huggulega efri hæð, birt stærð er 78.4 fm. Mikið endurnýjuð 3 herbergja efri sérhæð í tvíbýlishúsi við Suðurgötu 28 í Keflavík.  
Gengið er inn um sérinngang í flísalagða forstofu með fataskáp. Í anddyri er rafmagnstafla og þaðan tekur við hol með parketi sem tengir saman rými íbúðarinnar.
Rúmgóð stofa er björt og notaleg með parketi á gólfi. Eldhúsið er með fallegri nýlegri viðarinnréttingu og góðri vinnuaðstöðu. Þar er bakarofn, helluborð og vinnulýsing undir efri skápum við vask. Flísar eru á gólfi.
Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi með parketi á gólfum. Hjónaherbergið er með fataskáp en hitt herbergið hentar vel sem barnaherbergi, gestaherbergi eða skrifstofa.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf og búið upphengdu salerni, sturtu og snyrtilegri innréttingu undir handlaug.
Þvottahúsið er rúmgott með lítilli innréttingu og flísum á gólfi. Hitagrind fyrir íbúðina er staðsett í þvottahúsi á neðri hæð hússins.
Yfir íbúðinni er geymsluloft sem veitir gott aukapláss til geymslu.
Eignin hefur fengið verulegt viðhald og endurbætur á árunum 2020–2021. Þá voru allir gluggar endurnýjaðir, nýtt þakjárn sett á húsið og húsið sprunguviðgert og málað að utan. Neysluvatnslagnir og frárenslislagnir endurnýjaðar út í götu. Rafmagn yfirfarið og endurnýjað að hluta,


Nánari upplýsingar veitir:
Halla Vilbergsdóttir löggiltur fasteignasali, í síma 7727930, tölvupóstur [email protected].


Lýsing eignar:  
Forstofa: Með flísum á gólfi og fataskápur. Rafmagnstafla er í anddyri.
Hol: Með parket á gólfi.  
Baðherbergi: Er með flísum á gólfi og veggjum, upphengdu klósetti, sturtu og lítil innrétting undir handlaug.
Eldhús: Með nýlegri viðar innréttingu, ásamt tækjum ss. ofn í vinnuhæð, helluborð og vinnulýsing undir efri skápum við vask. Flísar eru á gólfi.
Stofa: Er rúmgóð með parket á gólfi.
2 svefnherbergi, skápur í hjónaherbergi og parket á gólfum.
Þvottahús: Er rúmgott með lítilli innréttingu. Flísar eru á gólfi. Hitagrind er í þvottahúsi innan neðri hæðar.
Geymsluloft er yfir íbúð efri hæðar. 

Á lóðinni var áður bílskúr sem hefur verið rifinn. Á lóðinni er einnig rúmgóður geymslukofi með rafmagni sem nýtist vel til geymslu. Samkvæmt upplýsingum seljanda er möguleiki á að endurbyggja bílskúr á lóðinni, en kaupendur eru hvattir til að kynna sér gildandi skipulags- og byggingarskilmála hjá Reykjanesbæ.

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Sæki nálæga staði…

Áætlaður kaupkostnaður

— kr.

Stimpilgjald
235.600 kr.
Lántökugjald
0 kr.
Þinglýsing skjala
3.800 kr.
Umsýslugjald
—

Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.

Umsýslugjald liggur ekki fyrir.

Lánareiknivél

kr.
kr.

Fyrsta greiðsla

221.649 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 1

Fyrsta greiðsla

243.077 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 2

Fyrsta greiðsla

157.077 kr.

Verðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 3

Miðað við 0% ársverðbólgu. Verðbætur hækka höfuðstól og greiðslur.

Forsendur og vaxtaupplýsingar · Arion banki

0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.

Arion lánar að 80%, eða 85% við fyrstu kaup. Verðtryggð lán eru að 70% veðsetningu og til mest 30 ára.

Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.

Vaxtatafla gildir frá 3. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.

Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026

Fleiri myndir

Suðurgata 1
Suðurgata 2
Suðurgata 3
Suðurgata 4
Suðurgata 5
Suðurgata 6
Suðurgata 7
Suðurgata 8
Suðurgata 9
Suðurgata 10
Suðurgata 11
Suðurgata 12
Suðurgata 13
Suðurgata 14
Suðurgata 15
Suðurgata 16
Suðurgata 17
Suðurgata 18
Suðurgata 19
Suðurgata 20
Suðurgata 21
Suðurgata 22
Suðurgata 23
Suðurgata 24
Suðurgata 25