Asparlaut 24
Nánari upplýsingar og skoðunarbókanir veitir:
Unnur Svava Sverrisdótir löggiltur fasteignasali, [email protected] eða 8682555
Asparlaut 24, íbúð 401, er vel staðsett lyftu eign í nýju glæsilegu Hlíðarhverfi í Reykjanesbæ. Húsið er 17 íbúða fjölbýlishús. Göngufæri við nýjan leikskóla, Holtaskóla, Fjölbrautarskóla Suðurnesja, Vatnaveröld, fimleikahöll og fótbolta.
Aðeins um 25 mín frá höfuðborgarsvæði.
Virkilega falleg eign á frábærum stað:
Komið er inn í rúmgott hol með klæðaskáp, tvö mjög rúmgóð svefnherbergi eru í eigninni, bæði með góðum sérsmíðuðum klæðaskápum, frá herbergjum og alrými er fallegt haf- og fjallaaútsýni. Stofa er opin við borðstofu og eldhús með eyju sem hægt er að sitja við. Útgengt er út á svalir frá opnu rými. Svalir hafa svalalokun sem hægt er að opna alveg. Sól nær svölum frá morgni til kvölds og útsýnið mjög fallegt. Baðherbergi er rúmgott og flísalagt með sturtu og sérsmíðaðri innréttingu. Þvottahús hefur innréttingar og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Vortrými eru flísalögð og alrými og herbergi parketlögð. Innréttingar sérsmíðaðar og góð tæki. Eigninni fylgir bílskúr og bílastæði í bílskýli með rafhleðslustöð. Geymsla er mjög rúmgóð með góðri lofthæð. Einnig er sameiginleg vagna- og hjólageymsla. Lokað kerfi er á blokkinni.
Nánar um eign:
Eldhúsinnrétting, klæðaskápar og innihurðar eru vandaðar frá GKS í hnotulit eða í dökk gráum lit. Klæðaskápar eru í forstofu og svefnherbergjum. Í eldhúsi er ofn með blæstri og örbylgjuofn. Helluborð með innbyggðum gufugleypi, kæliskápur með frystihólfi og uppþvottavél frá Siemnes. Baðherbergi er flísalagt á gólfum og veggjum. Dökkar innréttingar frá GKS, speglaskápur, handlaug frá Tengi ehf. Handklæðaofn frá Vatnsvirkjanum, upphengt salerni með hæglokandi setu frá Ísleifi Jónssyni. Hurðir eru yfirfelldar hvítlakkaðar frá Birgison. Lyfta er í húsinu. Bílageymsla er í opnu býlskýli á mill húsa. Innaf því er bílskúr og stæði í séreign. Epoxy er á gólfum. Skolvaksur er í bílskúr, búið er að leggja lögn frá vaski að bílskúrshurð fyrir bílaþvott og silanbera bílastæði fyrir framan bílskúrinn sem fylgir íbúðinni. Lóð er fullfrágengin.
* Virkilega spennandi og vönduð nýbygging í Holtaskólahverfi sem vert er að skoða *
Frábær staðsetning þar sem stutt er í skóla, nýjan leikskóla, íþróttaaðstöðu og alla helstu þjónustu.
Bókaðu skoðun núna og ég sýni þér um hæl - [email protected] eða 8682555.
Byggingaraðili: Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Sæki nálæga staði…
Áætlaður kaupkostnaður
— kr.
- Stimpilgjald
- 434.800 kr.
- Lántökugjald
- 0 kr.
- Þinglýsing skjala
- 3.800 kr.
- Umsýslugjald
- —
Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.
Umsýslugjald liggur ekki fyrir.
Lánareiknivél
Fyrsta greiðsla
392.483 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
409.054 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
427.887 kr.
Óverðtryggt
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Landsbankinn
0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.
Verðtryggð lán eru aðeins í boði við fyrstu kaup, til 20 ára og að 85% veðsetningu. Óverðtryggð lán ná að 80%, eða 90% við fyrstu kaup.
Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.
Vaxtatafla gildir frá 1. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.
Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026
Fleiri myndir













































