Reynidalur 6
Reynidalur 6, 260 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-03, fastanúmer 250-7748 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR, birt stærð 101.1 fm.
Seljandi skoðar skipti á eign á höfuðborgarsvæðinu.
Íbúðin er í sex íbúða húsi sem byggt var árið 2020 þar sem hver íbúð hefur sérinngang.
Um er að ræða bjarta og rúmgóða endaíbúð á jarðhæð með gluggum í þrjár áttir, stórum suðursvölum með glerhandriði og möguleiki á svalalokun. Sérmerkt bílastæði á lóð með hleðslustöð.
Lóðin er graslögð og gangstéttir hellulagðar og upphitaðar.
Íbúðin er vel staðsett í rólegu og fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.
Allar upplýsingar veita:
Halla Vilbergs Löggiltur fasteignasali, í síma 772-7930 og tölvupóstur [email protected]
Unnur Svava Sverrisdóttir löggiltur fasteignasali í síma 868-2555 og tölvupóstur [email protected]
Lýsing eignar:
Forstofa: Rúmgóð forstofa með fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús: Dökk innrétting með spanhelluborði og ofni í vinnuhæð. Eldunareyja með góðu vinnuplássi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja. Harðparket á gólfi.
Borðstofa: Tengist eldhúsi og stofu í opnu alrými. Rúmar stórt borð og nýtur birtu frá tveimur áttum.
Harðparket á gólfi.
Stofa: Björt stofa með útgengi á rúmgóðar svalir með glerhandriði. Harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott svefnherbergi með fataskáp. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi I: Svefnherbergi með fataskáp. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi II: Svefnherbergi með fataskáp. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Sturta með glervegg, upphengt salerni, handklæðaofn og innrétting með vask og speglaskáp. Flísar á gólfum og veggjum að hluta.
Þvottahús: Aðgengi um baðherbergi. Innrétting með plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, vaskur og vinnuborð. Flísar á gólfi.
-Sérinngangur.
-Innréttingar sérsmíðaðar hjá Grindinni.
-Endaíbúð með gluggum í þrjár áttir.
-Suðursvalir með glerhandriði.
-Sérmerkt bílastæði með þriggja fasa hleðslustöð.
-Sameiginleg geymsla á lóð.
-Graslögð lóð og hellulögð stétt.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Sæki nálæga staði…
Áætlaður kaupkostnaður
— kr.
- Stimpilgjald
- 271.600 kr.
- Lántökugjald
- 0 kr.
- Þinglýsing skjala
- 3.800 kr.
- Umsýslugjald
- —
Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.
Umsýslugjald liggur ekki fyrir.
Lánareiknivél
Fyrsta greiðsla
255.518 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
280.220 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
181.078 kr.
Verðtryggt
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Arion banki
0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.
Arion lánar að 80%, eða 85% við fyrstu kaup. Verðtryggð lán eru að 70% veðsetningu og til mest 30 ára.
Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.
Vaxtatafla gildir frá 3. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.
Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026
Fleiri myndir





























