Suðurgata 24
Um er að ræða fallega og rúmgóða eign í þríbýlishúsi, staðsetta í hjarta Keflavíkur. Eignin er á efstu hæð með sérinngangi og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, m.a. góða útleigumöguleika.
*** Stúdíóíbúð í bílskúr (ósamþykkt) – góðir útleigumöguleikar
*** Nýlega endurnýjað eldhús og baðherbergi
*** Suðursvalir
*** Gott geymslupláss í risi
Nánari upplýsingar veita:
Halla Vilbergs Löggiltur fasteignasali, í síma 772-7930 og á netfanginu [email protected]
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5500, tölvupóstur [email protected].
Skipulag eignar:
Gengið er upp steyptar tröppur að sérinngangi. Við tekur stigagangur með steinteppi og fallegu járnhandriði sem leiðir upp í íbúðina.
Forstofa/gangur: Með aðstöðu fyrir fatahengi á palli.
Eldhús: Smekklega endurnýjað með fallegri innréttingu þar sem viður og hvítur litur fara saman. Granítborðplötur, eyja með helluborði, bakaraofn í vegg, djúpur vaskur og innbyggð uppþvottavél og ísskápur.
Hjónaherbergi: Rúmgott með parketi og nýlegu fataherbergi inn af.
Svefnherbergi: Þrjú barnaherbergi, öll parketlögð. Fataskápar í einu þeirra.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtu og glerþili, upphengt salerni. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Ris: Gott geymslupláss með niðurdraganlegum stiga.
Rúmgóður bílskúr þar sem útbúin hefur verið stúdíóíbúð (ósamþykkt) með nýlegum gólfefnum og innréttingum.
Sameiginlegt þvottahús er í kjallara. Eignaskiptayfirlýsing er til frá árinu 1999.
Endurbætur og viðhald sem eignin hefur fengið.
*** Eldhús endurnýjað árið 2006.
*** Baðherbergi endurnýjað árið 2006.
*** Rafmagn endurnýjað að hluta árið 2006.
*** Þak hússins endurnýjað að hluta árið 2005.
*** Húsið málað að utan árið 2017.
*** Stúdíóíbúð útbúin í bílskúr um árið 2019
*** Þak húss endurnýjað að hluta árið 2005
*** Raflagnir endurnýjaðar að hluta árið 2006
*** Þak á bílskúr hefur verið endurnýjað að hluta.
Eignin er staðsett miðsvæðis í Keflavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, verslanir, heilbrigðisþjónustu og fjölbreytta afþreyingu.
Falleg og vel við haldin eign með mikla möguleika á góðum stað í Keflavík.
Sæki nálæga staði…
Áætlaður kaupkostnaður
— kr.
- Stimpilgjald
- 279.600 kr.
- Lántökugjald
- 0 kr.
- Þinglýsing skjala
- 3.800 kr.
- Umsýslugjald
- —
Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.
Umsýslugjald liggur ekki fyrir.
Lánareiknivél
Fyrsta greiðsla
263.044 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
288.473 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
186.412 kr.
Verðtryggt
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Arion banki
0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.
Arion lánar að 80%, eða 85% við fyrstu kaup. Verðtryggð lán eru að 70% veðsetningu og til mest 30 ára.
Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.
Vaxtatafla gildir frá 3. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.
Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026
Fleiri myndir




























