Gjáhella 13
Gjáhella 13, 221 Hafnarfjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-07, fastanúmer 236-6038 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR, birt stærð 146.5 fm.
Um er að ræða vel skipulagt, gott iðnaðar- og lagerhúsnæði með íverurými á efri hæð. Endabil í Hellnahrauni, sem er ört vaxandi iðnaðar- og þjónustusvæði í Hafnarfirði.
Stálgrindarhús og einangraðar samlokueiningar - viðhaldslétt.
Eign sem vert er að skoða.
Bil nr. 107 er 146,5 fm. endabil á tveimur hæðum:
Neðri hæðin er 71,4 fm. með um 4ra metra lofthæð og stórri innkeyrsluhurð (340*380).
Einnig er hefðbundin inngönguhurð frá bílastæðinu (við hlið innkeyrslu).
Neðri hæðin er eitt rými, auk þess sem þar er salerni og lítil geymsla. Þar er lítið milli loft úr stálgrindar pöllum sem létt er að taka niður.
Efri hæð er skráð 71,6 fm og stigahús 3,5 fm. Inngangur á efri hæð er um sérinngang til hliðar við innkeyrsluhurð. Uppi er fullbúið 3ja herb. íverurými. Eldhús- salernis- og baðaðstaða með innréttingum og gólfefnum, smart lýsingu og gluggum á tvo vegu auk þakglugga með brunahólfi í einu herbergi með eldvarnarhurð.
Lóðin er frágengin með malbikuðum bílastæðum. Sérmerkt gámastæði fylgir eigninni, auk liðlega 40 fm. sérafnotareits framan við innkeyrsluhurð.
Húsið er stálgrindarhús á steyptum sökklum og hentar í fjölbreytta starfssemi.
Nánari upplýsingar veita:
Halla Vilbergsdóttir -Löggiltur fasteignasali, í síma 772-7930, tölvupóstur [email protected].
Ásta María Jónasdóttir Löggiltur fasteignasali. tölvupóstur [email protected]
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Sæki nálæga staði…
Áætlaður kaupkostnaður
— kr.
- Stimpilgjald
- 227.600 kr.
- Lántökugjald
- 0 kr.
- Þinglýsing skjala
- 3.800 kr.
- Umsýslugjald
- —
Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.
Umsýslugjald liggur ekki fyrir.
Lánareiknivél
Fyrsta greiðsla
205.449 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
214.123 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
223.981 kr.
Óverðtryggt
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Landsbankinn
0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.
Verðtryggð lán eru aðeins í boði við fyrstu kaup, til 20 ára og að 85% veðsetningu. Óverðtryggð lán ná að 80%, eða 90% við fyrstu kaup.
Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.
Vaxtatafla gildir frá 1. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.
Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026
Fleiri myndir












