Dalsbrún 2
ATH! Möguleiki er að leigja eignina. Hafið samband við fasteignasala fyrir frekari upplýsingar.
Nánari upplýsingar veitir:
Dísa Edwards Löggiltur fasteignasali, í síma 863-6608, tölvupóstur [email protected]
*** Innfelld lýsing
*** Gólfhiti er í húsinu.
*** Sólpallur út frá stofu og vísar til suðurs. Heitur pottur með pottastýringu.
*** Hellulagt bílaplan.
Lýsing eignar:
Íbúðin skiptist í anddyri, rúmgott alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Anddyri: Flísalagt með góðum skáp.
Svefnherbergi er inn af anddyri. Parket á gólfi.
Eldhús hefur dökka, stíhreina innréttingu, eyju sem hægt er að sitja við og í henni er helluborð. Bakaraofn í vinnuhæð.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Dökk innrétting með stórum vaski og spegill. Walk in sturta, upphengt salerni og handklæða ofn.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og í opnu rými með eldhúsi. Parket á gólfi og gengið útá pall sem snýr til suðurs.
Svefnherbergi hefur parket á gólfi.
Þvottahús hefur rúmgóða hvíta innréttingu. Pláss er fyrir bæði þvottavél og þurrkara. Þar er einnig lúga/stigi upp í geymslurými á háalofti. Flísar á gólfi.
Bílastæði er hellulagt og þar hefur verið sett upp hleðslustöð. Gróinn, afgirtur garður með palli og heitum potti.
Húsið er byggt árið 2016, staðsteypt og steinað að utan. Stutt er í fallegar gönguleiðir, verslun og alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir:
Dísa Edwards Löggiltur fasteignasali, í síma 863-6608, tölvupóstur [email protected]
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Sæki nálæga staði…
Áætlaður kaupkostnaður
— kr.
- Stimpilgjald
- 279.600 kr.
- Lántökugjald
- 0 kr.
- Þinglýsing skjala
- 3.800 kr.
- Umsýslugjald
- —
Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.
Umsýslugjald liggur ekki fyrir.
Lánareiknivél
Fyrsta greiðsla
255.042 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
263.044 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
283.293 kr.
Óverðtryggt
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Íslandsbanki
0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.
Yfir 80% veðsetningu bætist við óverðtryggt aukalán til mest 10 ára á 11,35% vöxtum, að hámarki 7 m.kr. og 90% heildarveðsetningu við fyrstu kaup.
Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.
Vaxtatafla gildir frá 3. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.
Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026