Huldudalur 17
Um er að ræða 5 herbergja ( fjögur svefnherbergi ) parhús í Dalshverfi III í Innri-Njarðvík. Gott skipulag. Eignin skiptist í forstofu, forstofuherbergi, gestasalerni, þvottahús, sjónvarpshol þar sem 3 svefnherbergi eru innaf holi, eldhús er opið við stofu og borðstofu. Innangenginn bílskúr.
Hægt er að fá eignina afhenda á öðrum byggingastigum. Skv nánara samkomulagi.
Afhending á byggingastigi B3 (Tilbúið til innréttinga): 99.900.000 kr
Afhending á byggingastigi B4 (Fullgerð eign) :118.000.000 kr
Nánari upplýsingar veita:
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur [email protected].
Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5524, tölvupóstur [email protected].
Um er að ræða steinsteypt parhús á einni hæð sem skilast fokhelt rúmlega fokhelt. Lóð er frágengin og búið að setja upp blikk veggi.
Gott tækifæri fyrir laghenta aðila sem vantar vetrarverkefni!
Frágangur eignar útfrá skilalýsingu.
Utanhúss
Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt standandi báru-álklæðningu (18/76). Þak er frágengið með tvöföldu lagi þakpappa, XPS einangrun og möl. Gluggar og hurðir eru úr ál/tré, svartir að utan (Ral 9005) en hvítir að innan, með tvöföldu k-gleri – ábyrgð framleiðanda á gleri fylgir kaupanda við afhendingu. Útiljós á klæðningu fylgja. Lóð skilast með hellulögðu bílaplani og grasi þar sem við á.
Innandyra
Húsið skilast með slípuðum steyptum veggjum og rörasladdaðri botnplötu. Kaupandi gæti þurft að rétta af og múra steypta fleti fyrir sandspörslun. Búið er að koma fyrir boxum fyrir loftljós, börkum fyrir útsog í votrýmum og blikkgrindum fyrir létta veggi, auk þess sem lagt hefur verið fyrir vatns- og neysluvatnslögnum (ótengt). Gluggar koma málaðir en gætu þurft hreinsun/lokamálun.
Afhending
Afhending fer fram samkvæmt samkomulagi í kauptilboði. Kaupandi getur hafið innivinnu strax við afhendingu, jafnvel þó úti- og klæðningarvinnu sé ekki að fullu lokið. Við afhendingu fer fram stöðuúttekt og byggingarstjóri segir sig frá verkinu – kaupandi þarf því að ráða nýjan byggingarstjóra og meistara.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það hefur verið lagt á eftir lokaúttekt og beiðni um brunabótamat.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Sæki nálæga staði…
Áætlaður kaupkostnaður
— kr.
- Stimpilgjald
- 319.200 kr.
- Lántökugjald
- 0 kr.
- Þinglýsing skjala
- 3.800 kr.
- Umsýslugjald
- —
Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.
Umsýslugjald liggur ekki fyrir.
Lánareiknivél
Fyrsta greiðsla
291.163 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
300.299 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
323.417 kr.
Óverðtryggt
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Íslandsbanki
0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.
Yfir 80% veðsetningu bætist við óverðtryggt aukalán til mest 10 ára á 11,35% vöxtum, að hámarki 7 m.kr. og 90% heildarveðsetningu við fyrstu kaup.
Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.
Vaxtatafla gildir frá 3. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.
Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026
Fleiri myndir




















