Huldudalur 33

260 Reykjanesbær | Raðhús
109.900.000 kr.
809 þ.kr./m2
4 svefnherbergi
1 baðherbergi
135.8 m2
Byggt 2025
Ertu með einhverjar spurningar?

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala kynnir eignina Huldudalur 33 .Fallegt og vel skipulagt 157,5 fm einnar hæðar raðhús með bílskúr.

Við Huldudal 33 í Reykjanesbæ stendur til sölu glæsilegt og vandað 5 herbergja endaraðhús á einni hæð. Heildarstærð eignarinnar er 157,5 fm, þar af er íbúðarhlutinn 135,8 fm og bílskúr 21,7 fm.

Nánari upplýsingar veitir/veita:
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali,  í síma 560-5501 tölvupóstur [email protected].
Sigurjón Rúnarsson, Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5524, tölvupóstur [email protected]


Eignin afhendist fullbúin að utan sem innan, utan gólfefna. Lóð afhendist frágengin, með hellulögn framan við hús og að hluta til fyrir aftan, en að öðru leyti tyrfð. Nánari upplýsingar um skil koma fram í skilalýsingu seljanda.

Afhending: Við kaupsamning.

Skipulag eignar samkvæmt teikningum
Eignin er einstaklega vel hönnuð og skiptist í eftirfarandi rými:
Forstofa og bílskúr

Anddyri með góðum skápum.
Innangengt er þaðan í rúmgóðan bílskúr (21,7 fm).
Gestasnyrting staðsett við forstofu.

Þvottahús
Þvottahús með vaski og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Útgengi úr þvottahúsi á lóð er samkvæmt teikningu.

Svefnherbergi
Alls fjögur svefnherbergi, öll með skápum.
Hjónaherbergi rúmgott með mikið skápaplássi.

Alrými – stofa, borðstofa og eldhús
Bjart og opið alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda skipulega heild.
Eldhús með góðum innréttingum, eyju og ríkulegu skápaplássi.
Rennihurð úr alrýminu leiðir út á skjólgóða verönd.

Baðherbergi
Baðherbergi með walk‑in sturtu og útgengi á verönd samkvæmt teikningu.
Gott skápapláss og nútímaleg hönnun í rými.


Frágangur og byggingarefni
Húsið er hannað með gólfhita í öllum rýmum. Staðsteypt hús með ytri einangrun og klæðningu úr báru‑áli. Gluggar og hurðir eru ál/tré kerfi. Sett er tvöfalt einangrunargler (K‑gler). Utanáliggjandi útiljós fylgja samkvæmt skilalýsingu. Steyptur stoðveggur milli lóða fylgir ómeðhöndlaður. Innréttingar eru frá AXIS. Flísar eru frá Parka. Blöndunartæki frá Grohe.

Allar nánari upplýsingar um skil má finna í skilalýsingu seljanda.

Fullkomið fjölskylduhús í vandaðri og nútímalegri byggingu
Um er að ræða vandaða og rúmgóða fjölskyldueign með vel nýttum fermetrum, hágæða efnisvali og góðu skipulagi. Björt rými, fjögur svefnherbergi og stórt alrými gera húsið einstaklega skemmtilegt heimili.


Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Sæki nálæga staði…

Áætlaður kaupkostnaður

— kr.

Stimpilgjald
439.600 kr.
Lántökugjald
0 kr.
Þinglýsing skjala
3.800 kr.
Umsýslugjald
—

Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.

Umsýslugjald liggur ekki fyrir.

Lánareiknivél

kr.
kr.

Fyrsta greiðsla

396.816 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 1

Fyrsta greiðsla

413.570 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 2

Fyrsta greiðsla

432.610 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 3
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Landsbankinn

0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.

Verðtryggð lán eru aðeins í boði við fyrstu kaup, til 20 ára og að 85% veðsetningu. Óverðtryggð lán ná að 80%, eða 90% við fyrstu kaup.

Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.

Vaxtatafla gildir frá 1. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.

Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026

Fleiri myndir

Huldudalur 1
Huldudalur 2
Huldudalur 3
Huldudalur 4
Huldudalur 5
Huldudalur 6
Huldudalur 7
Huldudalur 8
Huldudalur 9
Huldudalur 10
Huldudalur 11
Huldudalur 12
Huldudalur 13
Huldudalur 14
Huldudalur 15
Huldudalur 16
Huldudalur 17
Huldudalur 18
Huldudalur 19
Huldudalur 20
Huldudalur 21
Huldudalur 22
Huldudalur 23
Huldudalur 24
Huldudalur 25
Huldudalur 26
Huldudalur 27
Huldudalur 28
Huldudalur 29
Huldudalur 30
Huldudalur 31
Huldudalur 32
Huldudalur 33
Huldudalur 34
Huldudalur 35
Huldudalur 36
Huldudalur 37
Huldudalur 38
Huldudalur 39
Huldudalur 40
Huldudalur 41
Huldudalur 42
Huldudalur 43
Huldudalur 44
Huldudalur 45
Huldudalur 46