Greniteigur 15
Greniteigur 15, 230 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 208-7768.
Um er að ræða vel skipulagt 5 herbergja endaraðhús með bílskúr á eftirsóttum og fjölskylduvænum stað í Keflavík. Heildarstærð eignarinnar er 172,6 fm, þar af er íbúðarhluti 143,4 fm og 29,2 fm bílskúr.
Eignin er björt, rúmgóð og smekklega uppsett með góðu sólpalli og lokuðum bakgarði.
Seljendur skoða skipti á ódýrari eign í 230 Reykjanesbæ.
Eignin samanstendur af anddyri, fjórum svefnherbergjum, eldhúsi, stofu og borðstofu í opnu rými, baðherbergi, gestasalerni, þvottahús, bílskúr, svölum og afgirtum palli með heitum potti.
*** Seljendur skoða skipti á minni/ódýrari eign í Reykjanesbæ. ***
Nánari upplýsingar veitir/veita:
Halla Vilbergsdóttir nemi til löggildingar, í síma 560-5514, tölvupóstur [email protected].
Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur [email protected].
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og gott pláss fyrir fatageymslu.
Stofa og borðstofa mynda bjart og rúmgott alrými með stórum gluggum sem hleypa inn mikilli birtu. Úr stofu er gengið út á skjólgóðan pall með heitum potti.
Eldhús er með góðri viðarinnréttingu, helluborði, viftu og miklu skápaplássi.
Þvottahús er innaf eldhúsi og er það rúmgott og með útgengi út á lóð að framan.
Svefnherbergin eru fjögur, öll rúmgóð með parketi á gólfi. Eitt svefnherbergi er á neðri hæð og þrjú á efri hæð.
Á efri hæð er útgengi út á stórar svalir með mikla möguleika fyrir útihúsgögn og notalegt útirými.
Baðherbergin eru tvö, gestasalerni á neðri hæð með flísum á gólfi og veggjum að hluta, sturtu, salerni og innréttingu.
Aðalbaðherbergi á efri hæð er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, sturtu, salerni, innréttingu og handklæðaofni.
Bílskúr er rúmgóður, um 29,2 fm, með góðu geymsluplássi. Kalt vatn, niðurfall og möguleiki á að bæta við heitu rennandi vatni. Blöndunartæki fyrir heitan pott inní bílskúr.
Lóðin er ræktuð og afgirt.
Staðsetning eignarinnar er afar góð, stutt í skóla, leikskóla, verslanir og alla helstu þjónustu.
Helstu endurbætur sl 5-6 ár að sögn seljanda:
Þak er nýlegt
Sprunguviðgerðir framkvæmdar og eign máluð að utan.
Skipt um glugga að aftanverðu (stofa og hjónaherbergi)
Nýtt gólfefni á neðri hæð og eignin nýlega máluð að innan
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Sæki nálæga staði…
Áætlaður kaupkostnaður
— kr.
- Stimpilgjald
- 335.600 kr.
- Lántökugjald
- 0 kr.
- Þinglýsing skjala
- 3.800 kr.
- Umsýslugjald
- —
Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.
Umsýslugjald liggur ekki fyrir.
Lánareiknivél
Fyrsta greiðsla
315.728 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
346.251 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
223.747 kr.
Verðtryggt
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Arion banki
0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.
Arion lánar að 80%, eða 85% við fyrstu kaup. Verðtryggð lán eru að 70% veðsetningu og til mest 30 ára.
Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.
Vaxtatafla gildir frá 3. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.
Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026