Hringhamar 37

221 Hafnarfjörður | Fjölbýli
73.900.000 kr.
816 þ.kr./m2
2 svefnherbergi
1 baðherbergi
90.6 m2
Byggt 2023
Ertu með einhverjar spurningar?

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:
Hringhamar 37 er björt og vel skipulögð 3 herbergja íbúð á 3 hæð með austursvölum í nýlegu lyftuhúsi frá 2024. Húsið er steinsteypt, einangrað að utan og klætt með álklæðningu. Allir gluggar eru timbur-álgluggar frá Byko. Íbúðin er staðsett nýju hverfi í Hamranesi í Hafnarfirði þar sem skólar og leikskólar eru í göngufæri og stutt er í alla helstu þjónustu. 
 
Nánari lýsing eignar:
Komið er í forstofu með góðum fataskáp og parket gólfi. Frá forstofu er komið inn í hol sem er miðja heimilsins og það er gengið inn í öll rými íbúðarinnar. Stofa og eldhús er opið og mynda stórt alrými með stórum gluggum og útgang út austursvalir. Baðherbergi er á vinstri hönd þegar gengið er inn frá forstofu, baðherbergi er með snyrtilegri vask innréttingu, sturtu, upphengt salerni og handklæða ofn. Þvottaherbergi er innaf baðherbergi með tengi fyrir þvottavel og þurrkara. Herbergin eru tvö, stærra herbergið (hjónaherbergið) með þreföldum fataskáp og hefur verið breyt í sjónvarpsherbergi og hitt herbergið (barnaherbergið) er með tvöföldum fataskáp og parket á gólfum. Þá fylgir sér geymsla í sameign og stæði í lokaðari bílageymslu. 

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í nýlegu og fjölskylduvænu hverfi í Hamranesi í Hafnarfirði, þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, útivistarsvæði og helstu þjónustu og verslanir. Frábærar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni. 

Hringhamar 35-37 eru tvö fimm hæða hús sem standa ofan á steyptum, sameiginlegum kjallara með geymslum og bílastæðum. Samtals eru 46 íbúðir í húsunum.
Húsið er steinsteypt, eingangrað að utan með steinull og klætt að stærstum hluta með álklæðningu, timburklæðning er inná flestum svölum. Gluggar eru eftirísettir áltré gluggakerfi frá Byko. Stigahús eru teppalögð en andyrishús flísalögð með hálkufríum flísum. Innréttingar og skápar eru frá Arens og eru með ljúflokunarbúnaði. Eldhústæki eru frá Bræðrunum Ormsson.

Nánari upplýsingar veitir:
Ásgeir Þór Ásgeirsson Löggiltur fasteignasali og viðskiptalögfræðinur í síma 772-0102, tölvupóstur [email protected]
Haukur Andreasson Löggiltur fasteignasali og lögfræðingur í síma 866-9954, tölvupóstur [email protected] 

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Staðsetning eignar er ekki tiltæk.

Áætlaður kaupkostnaður

— kr.

Stimpilgjald
295.600 kr.
Lántökugjald
0 kr.
Þinglýsing skjala
3.800 kr.
Umsýslugjald
—

Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.

Umsýslugjald liggur ekki fyrir.

Lánareiknivél

kr.
kr.

Fyrsta greiðsla

269.636 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 1

Fyrsta greiðsla

278.097 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 2

Fyrsta greiðsla

299.505 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 3
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Íslandsbanki

0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.

Yfir 80% veðsetningu bætist við óverðtryggt aukalán til mest 10 ára á 11,35% vöxtum, að hámarki 7 m.kr. og 90% heildarveðsetningu við fyrstu kaup.

Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.

Vaxtatafla gildir frá 3. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.

Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026

Fleiri myndir

Hringhamar 1
Hringhamar 2
Hringhamar 3
Hringhamar 4
Hringhamar 5
Hringhamar 6
Hringhamar 7
Hringhamar 8
Hringhamar 9
Hringhamar 10
Hringhamar 11
Hringhamar 12
Hringhamar 13
Hringhamar 14
Hringhamar 15
Hringhamar 16
Hringhamar 17
Hringhamar 18
Hringhamar 19
Hringhamar 20
Hringhamar 21
Hringhamar 22
Hringhamar 23
Hringhamar 24
Hringhamar 25
Hringhamar 26