Breiðbraut 672
Breiðbraut 672, 262 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-04, fastanúmer 230-8783 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR, birt stærð 169.9 fm.
Virkilega spennandi fjölskyldu eign með þremur rúmgóðum svefnherbergjum og þremur baðherbergjum. Í nálægð við leik- og grunnskóla, veitingastaði og líkamsrækt. Aðeins um 20 mín frá höfuðborgarsvæði.
Eignin gæti einnig verið kjörin til herbergjaleigu, mögulegt væri að gera 2 svefnherbergi í stofu og vera þá með 5 svefnherbergi til leigu ásamt 3 baðherbergjum, rúmgóðu eldhúsi og þvottahúsi.
Eignin er nýlega máluð að innan og er laus við kaupsamning.
Komið er inn í góða flísalagða forstofu með klæðaskáp, inn af forstofu er þvottahús með skolvaski og hvítum skápum. Gestasalerni. Eldhús er opið við borðsstofu og stofu og þaðan er útgengt út á góðan sólpall ásamt steyptri útigeymslu (9,3fm). Fallegur eikarstigi er upp á efri hæð, þar eru þrjú svefnherbergi, öll með klæðaskápum. Flísalagt baðherbergi og baðherbergi með sturtu inn af hjóna herbergi. Alrými og svefnherbergi hafa harðparket á gólfum og votrými dúkarlögð.
BÓKAÐU SKOÐUN: Unnur Svava Sverrisdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 868-2555, tölvupóstur [email protected].
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Sæki nálæga staði…
Áætlaður kaupkostnaður
— kr.
- Stimpilgjald
- 272.000 kr.
- Lántökugjald
- 0 kr.
- Þinglýsing skjala
- 3.800 kr.
- Umsýslugjald
- —
Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.
Umsýslugjald liggur ekki fyrir.
Lánareiknivél
Fyrsta greiðsla
245.527 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
255.894 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
267.675 kr.
Óverðtryggt
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Landsbankinn
0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.
Verðtryggð lán eru aðeins í boði við fyrstu kaup, til 20 ára og að 85% veðsetningu. Óverðtryggð lán ná að 80%, eða 90% við fyrstu kaup.
Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.
Vaxtatafla gildir frá 1. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.
Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026
Fleiri myndir




























