Tjarnabraut 30

260 Reykjanesbær | Einbýli
124.900.000 kr.
855 þ.kr./m2
4 svefnherbergi
2 baðherbergi
146 m2
Byggt 2025
Ertu með einhverjar spurningar?

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala sími 560-5500 kynnir einbýlishúsin við Tjarnabraut 30  Virkilega vönduð ný staðsteypt einbýlishús. Eignin er fullgerð og afhendist við kaupsamning byggingaraðili Sparri ehf.

Bókið söluskoðun samdægurs eða eftir ykkar óskum.

Allar nánari upplýsngar og skoðunarbókun veitir:
Páll Þorbjörnsson löggiltur fasteignasali í síma 560-5501 og á netfanginu [email protected]


Netfang [email protected] & síma 560-5500 eða koma í kaffispjall til okkar að Hafnargötu 91


Um er að ræða 168,9 fm  einbýlishús með bílskúr á góðum stað í Njarðvík. Eignin er staðsteypt, útveggir eru einangraðir að utan með steinull og klæddir með stallaðri álklæðningu.
Íbúðarrými er 146,0 fm ásamt innbýgðum bílskúr 22,90 fm. Allir innveggir eru staðsteyptir eða hlaðnir.

*** Nýbygging
*** Vandaður verktaki
*** Eignin er fullfrágengin að innan og utan ásamt lóðarfrágangi
*** Fjögur svefnherbergi
*** Tvö baðherbergi með sturtum
*** Sólpallur með skjólveggjum.
*** Hjónaherbergi með fataherbergi


Eignin skiptist í anddyri, fjögur svefnherbergi, fataherbergi, tvö baðherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, þvottahús og bílskúr.

Nánari lýsing:
Andyri flísalagt með góðum fataskáp.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu björtu rými, parket á gólfi, úr stofunni er útgengi út á verönd.
Innrétting í eldhúsi er frá HTH, og heimilistæki frá AEG, þar er innbyggt helluborð, háfur, ofn og uppþvottavél.
Svefnherbergin eru fjögur talsins, öll parketlögð, Hjónaherbergi er rúmgott, þar er fataherbergi.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi, sturtu með sturtuskilrúmi úr gleri á eina hlið, upphengt salerni og góða innréttingu.
Gestabaðherbergi hefur flísar á gólfi, sturtu, upphengt salerni, innrétting og LED spegil.
Þvottahús hefur flísar á gólfi, góð innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Bílskur hefur Epoxy-gólf og bílskúrshurð með rafmagnsopnun. Rafmagns-ídráttarrör fyrir rafbílahleðslu er við hlið bílskúrshurðar.

Eignin hefur loftskiptikerfi, búnaður staðsettur í bílskúr eignar en túður í öllum rýmum.

Vönduð nýeign sem staðsett er í miðri Innri-Njarðvík.
 
Byggingarlýsing:
Eignin er staðsteypt á hefðbundinn hátt. Útveggir eru einangraðir að utan með steinull og klæddir með stallaðri álklæðningu sem fest er á ál-undirkerfi. Gluggar og útihurðir eru úr timbri/áli, dökkgráir að utan og hvítir að innan. Opnanleg fög eru útbúin viðurkenndum stormjárnum fyrir örugga rýmingu um björgunarop. Allir gluggar eru með tvöföldu einangrunargleri. Þak er uppbyggt með tveimur lögum af bræddum þakpappa, takkadúk þar yfir, tvöfaldri 10 cm einangrun, jarðvegsdúk og að lokum fargi (t.d. möl eða sambærilegt steinefni). Öll niðurföll frá þaki eru tengd við fráveitukerfi bæjarins. Sökklar og botnplata eru úr staðsteyptri, járnbentri steinsteypu. Undir botnplötu er plasteinangrun og utan á sökkla er steinullareinangrun.

Í loftum er innfelld LED lýsing. Eignin er með tengjum fyrir tölvu og síma ásamt hitastilli í hverju rými fyrir gólfhitakerfi. Eignin er með loftskiptikerfi með varmaendurvinnslu frá FIT Agix sem samkvæmt framleiðanda tryggir allt að 40% orkusparnað. Útveggir eru pússaðir eða slípaðir, sandsparslaðir, grunnaðir og málaðir með tveimur yfirferðum af plastmálningu (gljástig 7% eða sambærilegt). Léttir innveggir eru hlaðnir úr léttstein, sandsparslaðir, grunnaðir og málaðir með tveimur yfirferðum af plastmálningu (gljástig 7% eða sambærilegt). Loft eru sandspörsluð, grunnað og máluð með tveimur yfirferðum af plastmálningu (gljástig 2 eða sambærilegt). Loft og veggir í votrýmum (baðherbergi og þvottahús) eru máluð með viðurkenndri votrýmismálningu.

Lóð og aðkoma:
Innkeyrsla verður steypt með snjóbræðslukerfi. Rafmagns-ídráttarrör fyrir rafbílahleðslu er við hlið bílskúrshurðar. Lóð er tyrfð. Sólpallur verður timburklæddur, um 60 fm að stærð. Lagnir fyrr heitan pott. Sorpskýli verður steypt og staðsett innan lóðarmarka.
 
Eignin afhendist við kaupsamning.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati þegar það verður lagt á.


Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Staðsetning eignar er ekki tiltæk.

Áætlaður kaupkostnaður

— kr.

Stimpilgjald
499.600 kr.
Lántökugjald
0 kr.
Þinglýsing skjala
3.800 kr.
Umsýslugjald
—

Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.

Umsýslugjald liggur ekki fyrir.

Lánareiknivél

kr.
kr.

Fyrsta greiðsla

470.017 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 1

Fyrsta greiðsla

515.456 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 2

Fyrsta greiðsla

333.088 kr.

Verðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 3

Miðað við 0% ársverðbólgu. Verðbætur hækka höfuðstól og greiðslur.

Forsendur og vaxtaupplýsingar · Arion banki

0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.

Arion lánar að 80%, eða 85% við fyrstu kaup. Verðtryggð lán eru að 70% veðsetningu og til mest 30 ára.

Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.

Vaxtatafla gildir frá 3. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.

Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026

Fleiri myndir

Tjarnabraut 1
Tjarnabraut 2
Tjarnabraut 3
Tjarnabraut 4
Tjarnabraut 5
Tjarnabraut 6
Tjarnabraut 7
Tjarnabraut 8
Tjarnabraut 9
Tjarnabraut 10
Tjarnabraut 11
Tjarnabraut 12
Tjarnabraut 13
Tjarnabraut 14
Tjarnabraut 15
Tjarnabraut 16
Tjarnabraut 17
Tjarnabraut 18
Tjarnabraut 19
Tjarnabraut 20
Tjarnabraut 21
Tjarnabraut 22
Tjarnabraut 23
Tjarnabraut 24
Tjarnabraut 25
Tjarnabraut 26
Tjarnabraut 27
Tjarnabraut 28
Tjarnabraut 29
Tjarnabraut 30
Tjarnabraut 31
Tjarnabraut 32
Tjarnabraut 33
Tjarnabraut 34
Tjarnabraut 35
Tjarnabraut 36
Tjarnabraut 37
Tjarnabraut 38
Tjarnabraut 39
Tjarnabraut 40
Tjarnabraut 41
Tjarnabraut 42
Tjarnabraut 43
Tjarnabraut 44
Tjarnabraut 45