Hafnargata 29

230 Reykjanesbær | Fjölbýli
84.500.000 kr.
698 þ.kr./m2
2 svefnherbergi
2 baðherbergi
121 m2
Byggt 2019
Ertu með einhverjar spurningar?

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilega útsýnisíbúð að Hafnargötu 29, 230 Reykjanesbæ, nánar tiltekið eign merkta 05-03, fastanúmer 250-6573.

Um er að ræða glæsilega og einstaklega rúmgóða 121 fm, þriggja herbergja íbúð á 5. og efstu hæð í vönduðu 17 íbúða fjölbýlishúsi í hjarta Keflavíkur. Eigninni fylgir 14,1 fm sérgeymsla ásamt 1 og 1/2 sérmerktu stæði í lokaðri bílageymslu.

Íbúðin skiptist í forstofu, bjart og rúmgott alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi og sér þvottahús. Hjónaherbergið er sérlega rúmgott með góðum fataskápum og sér baðherbergi. Stórir gólfsíðir gluggar setja mikinn svip á eignina og bjóða upp á stórbrotið útsýni yfir hafið og fjallahringinn.

Nánari upplýsingar veitir:
Halla Vilbergsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 772-7930, tölvupóstur [email protected].


*** Glæsileg 121 fm útsýnisíbúð.
*** Fimmta og efsta hæð.
*** Stórbrotið sjávar- og fjallaútsýni.
*** Gólfsíðir gluggar og einstaklega björt rými.
*** Hjónasvíta með sér baðherbergi.
*** Tvö baðherbergi.
*** Sér þvottahús innan íbúðar.
*** 14,1 fm sérgeymsla.
*** Eitt og hálft sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu.
*** Búið er að leggja fyrir rafhleðslustöð.
*** Lyfta er í húsinu.
*** Frábær staðsetning í hjarta Keflavíkur – stutt í verslun, þjónustu, veitingastaði og mannlíf.


Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Forstofa með góðum fataskáp.
Eldhús: Fallegt og vel skipulagt eldhús með góðri eyju, opið við bjart alrými. Ásamt innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Innréttingar eru frá GKS.
Stofa/borðstofa: Einstaklega björt og rúmgóð stofa með stórum gólfsíðum gluggum. Útsýnið er stórbrotið yfir hafið og nærliggjandi fjallahring. Eldhús, borðstofa og stofa mynda saman glæsilegt og opið alrými. Útgengt er á svalir.
Hjónasvíta: Mjög rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Inn af hjónaherbergi er sér baðherbergi með fallegri innréttingu, rúmgóðri sturtu með flísalögðum botni, hertu sturtugleri, hitastýrðum sturtutækjum og upphengdu salerni.
Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með fataskáp.
Baðherbergi: Fallegt baðherbergi með innréttingu, rúmgóðri sturtu með flísalögðum botni, hertu sturtugleri, hitastýrðum sturtutækjum og upphengdu salerni. Votrými er flísalagt.
Þvottahús: Sér þvottahús innan íbúðar með innréttingu og flísum á gólfi.
Geymsla: Sérgeymsla í sameign á jarðhæð, 14,1 fm að stærð.
Hjóla- og vagnageymsla: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Bílageymsla: Eigninni fylgja tvö sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu.

Húsið:
Hafnargata 29 er vandað 17 íbúða fjölbýlishús á fimm hæðum auk kjallara. Lyfta er í húsinu og lokað bílastæðahús er í kjallara.


Flísar eru frá BYKO og/eða Álfaborg.
Mora blöndunartæki frá Tengi ehf.
Innréttingar og tæki frá GKS.
Innihurðir frá BYKO.
Fataskápar frá GKS og eru í svefnherbergjum og forstofu.


Staðsetning:
Hafnargata 29 er einstaklega vel staðsett í hjarta Keflavíkur þar sem stutt er í fjölbreytta verslun, þjónustu, veitingastaði og kaffihús. Hér er hægt að njóta þess að búa miðsvæðis og hafa daglega þjónustu og líf bæjarins í næsta nágrenni.
Hafnargatan er einn helsti verslunar- og þjónustukjarni Keflavíkur og fjölbreytt þjónusta er í göngufæri frá eigninni. Stutt er niður að sjávarsíðunni og skemmtilegum gönguleiðum meðfram strandlengjunni. Menning og afþreying eru jafnframt í næsta nágrenni.

Staðsetningin sameinar því einstaklega vel miðbæjarlíf, nálægð við hafið og greiðar samgöngur – allt á einum stað.
 
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Sæki nálæga staði…

Áætlaður kaupkostnaður

— kr.

Stimpilgjald
338.000 kr.
Lántökugjald
0 kr.
Þinglýsing skjala
3.800 kr.
Umsýslugjald
—

Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.

Umsýslugjald liggur ekki fyrir.

Lánareiknivél

kr.
kr.

Fyrsta greiðsla

305.104 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 1

Fyrsta greiðsla

317.986 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 2

Fyrsta greiðsla

332.626 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 3
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Landsbankinn

0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.

Verðtryggð lán eru aðeins í boði við fyrstu kaup, til 20 ára og að 85% veðsetningu. Óverðtryggð lán ná að 80%, eða 90% við fyrstu kaup.

Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.

Vaxtatafla gildir frá 1. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.

Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026

Fleiri myndir

Hafnargata 1
Hafnargata 2
Hafnargata 3
Hafnargata 4
Hafnargata 5
Hafnargata 6
Hafnargata 7
Hafnargata 8
Hafnargata 9
Hafnargata 10
Hafnargata 11
Hafnargata 12
Hafnargata 13
Hafnargata 14
Hafnargata 15
Hafnargata 16
Hafnargata 17
Hafnargata 18
Hafnargata 19
Hafnargata 20
Hafnargata 21
Hafnargata 22
Hafnargata 23
Hafnargata 24
Hafnargata 25
Hafnargata 26
Hafnargata 27
Hafnargata 28
Hafnargata 29
Hafnargata 30
Hafnargata 31
Hafnargata 32
Hafnargata 33
Hafnargata 34
Hafnargata 35
Hafnargata 36
Hafnargata 37
Hafnargata 38