Bjarkardalur 33

260 Reykjanesbær | Fjölbýli
54.500.000 kr.
546 þ.kr./m2
2 svefnherbergi
1 baðherbergi
99.9 m2
Byggt 2009
Ertu með einhverjar spurningar?

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Bjarkardalur 33, 260 Reykjanesbær, birt stærð 99.9 fm þar af 8,3 fm geymsla.
Um er að ræða fallega og bjarta 3 herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngang. Eignin samanstendur af forstofu, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi með þvottaaðstöðu, stofu og eldhúsi í opnu rými. Sólpallur snýr til suðurs. Sér geymsla ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Sérmerkt bílastæði fylgir íbúð.

** Jarðhæð.
** Sérinngangur.
** Sólpallur snýr til suðurs.
** Vinsæl staðsetning. Stutt í skóla og leikskóla.


Nánari upplýsingar veitir/veita:
Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali
, í síma 771-9820, tölvupóstur [email protected].
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur [email protected].


Nánari lýsing eignar:
Forstofa er með fataskáp, millihurð og flísum á gólfum.
Eldhús og stofa eru samliggjandi í opnu og björtu rými. Eldhús er með fallegum ljósum innréttingum og grárri borðplötu. Harðparket á gólfum og í svefnherbergjum.
Svefnherbergin eru tvö, mjög rúmgóð og björt. Hjónaherbergi er með góðum fataskápum og þaðan útgengt  út á skjólgóða viðarverönd sem snýr í suður.
Baðherbergi er með sturtubaðkari, upphengdu salerni og fallegri ljósri vaskinnréttingu með speglaskáp. Gert er ráð fyrir þvottavél á baðherbergi. Flísar eru á gólfum og veggjum að hluta.
Sérgeymsla er staðsett í sameign um 8,3 fm. að stærð ásamt hjóla- og vagnageymslu.
Merkt bílastæði fyrir framan inngang, vel staðsett og merkt íbúð.
Umhverfi: Vinsæl staðsetning þar sem stutt er í leik og grunnskóla. 
 
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Sæki nálæga staði…

Áætlaður kaupkostnaður

— kr.

Stimpilgjald
218.000 kr.
Lántökugjald
0 kr.
Þinglýsing skjala
3.800 kr.
Umsýslugjald
—

Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.

Umsýslugjald liggur ekki fyrir.

Lánareiknivél

kr.
kr.

Fyrsta greiðsla

198.852 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 1

Fyrsta greiðsla

205.091 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 2

Fyrsta greiðsla

220.880 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 3
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Íslandsbanki

0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.

Yfir 80% veðsetningu bætist við óverðtryggt aukalán til mest 10 ára á 11,35% vöxtum, að hámarki 7 m.kr. og 90% heildarveðsetningu við fyrstu kaup.

Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.

Vaxtatafla gildir frá 3. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.

Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026

Fleiri myndir

Bjarkardalur 1
Bjarkardalur 2
Bjarkardalur 3
Bjarkardalur 4
Bjarkardalur 5
Bjarkardalur 6
Bjarkardalur 7
Bjarkardalur 8
Bjarkardalur 9
Bjarkardalur 10
Bjarkardalur 11
Bjarkardalur 12
Bjarkardalur 13
Bjarkardalur 14
Bjarkardalur 15
Bjarkardalur 16