Lerkilundur 8

806 Selfoss | Sumarhús
35.000.000 kr.
602 þ.kr./m2
2 svefnherbergi
1 baðherbergi
58.1 m2
Byggt 1995
Ertu með einhverjar spurningar?

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilegt sumarhús við Lerkilund 8, 58,1 fm, sem er á 1653 fm eignarlóð í hverfi Veiðilundar. Um er að ræða fallegt og töluvert endurnýjað hús í landi Miðfells við Þingvallavatn. Nýlega er búið að byggja við húsið og endurnýja að innan.
 
** Lokað svæði með aðgangstýrðu rafmagnshliði.
** Eignarlóð
** Mikið endurnýjað og nýleg viðbygging. 
** Málað sumar 2024 ásamt drenun var bætt. 
** Góð aðstaða fyrir báta við vatnið og veiðileyfi í vatnið.

Fyrir nánari upplýsingar og skoðunarbókanir:
Elín Frímanns lgf 
[email protected] | farsími: 8674885


Nánari lýsing:
Þegar gengið er inn í húsið er komið inní nýlega viðbyggingu þar sem var þvottahús og geymsla en hefur verið útfært sem 3 svefnrýmið. 
Þá er komið inn í alrými með stofu og eldhúsi.
Í húsinu eru 2 svefnherbergi. Svefnloft er yfir hluta af húsinu.
Baðherbergið er snyrtilegt með góðri walk-in sturtu sem er flísalögð, innrétting með vask, gólfhiti er á baðherbergi.

Harðparket er á alrými og herbergjum. Korkur er á þvottahúsi/geymslu og á svefnlofti. Flísar eru á gólfi á baðherbergi.
Húsið er kynt með varmadælu og varmaskiptir er í húsinu. Einnig eru rafmagnsofnar sem hægt er að setja í gang ef þarf.
Gegnumstreymishitari fyrir neysluvatn og sturtu. 
Kalt vatn kemur úr borholu á svæðinu og er vatnsgjald innifalið í félagsgjaldi. 

Góð verönd er fyrir framan húsið sem snýr í suður. Í garðinum er kofi sem hefur verið notaður sem geymsla en hentar vel sem leikkofi fyrir börn.

Aðgangstýrt rafmagnshlið er inn og útaf svæði.
Gott félag er á svæðinu, Veiðilundur félag sumarbústaðaeigenda í Miðfellslandi Þingvalla. 
Vetrarþjónusta svo húsið nýtist allan ársins hring. 

Aðgangur er að veiði í Þingvallavatni.

Tæplega 60 mín akstur frá Höfuðborgarsvæðinu.
30 mín akstur á Selfoss.

Til að komast á staðinn er hægt að setja inní kortagrunn (maps eða google maps) Lerkilundur 8 806 Selfoss. Afleggjari vel merktur "Veiðilundur" 
https://maps.app.goo.gl/9JjCv5hLrRUpArDd8

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 59.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Sæki nálæga staði…

Áætlaður kaupkostnaður

— kr.

Stimpilgjald
140.000 kr.
Lántökugjald
0 kr.
Þinglýsing skjala
3.800 kr.
Umsýslugjald
—

Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.

Umsýslugjald liggur ekki fyrir.

Lánareiknivél

kr.
kr.

Fyrsta greiðsla

131.710 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 1

Fyrsta greiðsla

144.443 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 2

Fyrsta greiðsla

93.339 kr.

Verðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 3

Miðað við 0% ársverðbólgu. Verðbætur hækka höfuðstól og greiðslur.

Forsendur og vaxtaupplýsingar · Arion banki

0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.

Arion lánar að 80%, eða 85% við fyrstu kaup. Verðtryggð lán eru að 70% veðsetningu og til mest 30 ára.

Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.

Vaxtatafla gildir frá 3. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.

Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026

Fleiri myndir

Lerkilundur 1
Lerkilundur 2
Lerkilundur 3
Lerkilundur 4
Lerkilundur 5
Lerkilundur 6
Lerkilundur 7
Lerkilundur 8
Lerkilundur 9
Lerkilundur 10
Lerkilundur 11
Lerkilundur 12
Lerkilundur 13
Lerkilundur 14
Lerkilundur 15
Lerkilundur 16
Lerkilundur 17
Lerkilundur 18
Lerkilundur 19
Lerkilundur 20
Lerkilundur 21
Lerkilundur 22
Lerkilundur 23
Lerkilundur 24
Lerkilundur 25
Lerkilundur 26
Lerkilundur 27
Lerkilundur 28
Lerkilundur 29
Lerkilundur 30
Lerkilundur 31
Lerkilundur 32
Lerkilundur 33