Hólmbergsbraut 13 bil 7

230 Reykjanesbær | Atvinnuhúsnæði
45.000.000 kr.
418 þ.kr./m2
0 svefnherbergi
0 baðherbergi
107.6 m2
Byggt 2024
Ertu með einhverjar spurningar?

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala kynnir til sölu staðsteypt iðnaðar- eða geymsluhúsnæði að Hólmbergsbraut 13, bil 7, 230 Reykjanesbæ. Rýmið er á einni hæð með tveimur inngangshurðum með möguleika á millilofti. Nýbygging sem samanstendur af 14 iðnaðarbilum sem henta sérstaklega vel fyrir smáiðnað, geymslu eða sambærilega starfsemi.

Nánari upplýsingar veita:
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur [email protected]
Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 867-4885, tölvupóstur [email protected]


Stærð: Samkvæmt fasteignaskrá HMS er rýmið samtals 107,6 m².
Eignarhluti: Merkt 01-07, F2534078, með tilheyrandi lóð og sameignarréttindum.
Notkun: Iðnaðar- eða geymsluhúsnæði (notkunarflokkur 1).

Lýsing eignar
Eigninni er skilað án innveggja og innréttinga, sem veitir kaupanda sveigjanleika til að aðlaga rýmið að sínum þörfum.
Möguleiki er á uppsetningu millilofts.
Engar snyrtingar eru settar upp, en lagnakerfið gerir ráð fyrir að kaupandi geti komið þeim fyrir síðar.

Byggingarlýsing
Byggingin er úr staðsteyptum veggjum með steyptum innveggjum milli rýma.
Þak klætt með samlokueiningum úr steinull á límtrésbitum.
Útveggir einangraðir með steinull og klæddir lyggjandi báruáli.
Gluggar: Álgluggar með tvöföldu einangrunargleri.
Hurðir: Tvær inngangshurðir (framan og aftan) auk innkeyrsluhurðar með mótoropnun.
Loftræsting: Almenn loftræsting með opnanlegum fögum.
Hvert bil hefur eigið kaldavatnsinntak, hitaveituinntak og rafmagnstöflu.
Gólf: Steypt og afhent án frekari frágangs.

Lóð og aðkoma
Lóðarstærð: 3.841,2 m² – skilgreind sem iðnaðar- og athafnalóð.
Bílastæði: Tvö stæði fylgja hverju bili.
Aðkoma: Malbikuð að framan, grjóthleðsla eða sambærilegur frágangur aftan við byggingu til að jafna hæðarmun á lóðum.

Nánari upplýsingar veita:
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur [email protected]
Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 867-4885, tölvupóstur [email protected]


ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Staðsetning eignar er ekki tiltæk.

Áætlaður kaupkostnaður

— kr.

Stimpilgjald
180.000 kr.
Lántökugjald
0 kr.
Þinglýsing skjala
3.800 kr.
Umsýslugjald
—

Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.

Umsýslugjald liggur ekki fyrir.

Lánareiknivél

kr.
kr.

Fyrsta greiðsla

164.190 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 1

Fyrsta greiðsla

169.342 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 2

Fyrsta greiðsla

182.378 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 3
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Íslandsbanki

0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.

Yfir 80% veðsetningu bætist við óverðtryggt aukalán til mest 10 ára á 11,35% vöxtum, að hámarki 7 m.kr. og 90% heildarveðsetningu við fyrstu kaup.

Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.

Vaxtatafla gildir frá 3. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.

Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026

Fleiri myndir

Hólmbergsbraut 1
Hólmbergsbraut 2
Hólmbergsbraut 3
Hólmbergsbraut 4
Hólmbergsbraut 5
Hólmbergsbraut 6
Hólmbergsbraut 7
Hólmbergsbraut 8
Hólmbergsbraut 9
Hólmbergsbraut 10
Hólmbergsbraut 11
Hólmbergsbraut 12
Hólmbergsbraut 13
Hólmbergsbraut 14
Hólmbergsbraut 15
Hólmbergsbraut 16
Hólmbergsbraut 17
Hólmbergsbraut 18
Hólmbergsbraut 19