Iðavellir 7
Mjög gott atvinnuhúsnæði sem skiptist í framrými sem snýr út á aðalgötu með tveimur herbergjum og salerni. Rúmgott bakrými og afstúkað 47 fm sér rými sem er í útleigu. Samtals er eignin 194,3 fm byggð árið 2001. Um er að ræða 25% eignarhluta af húsnæðinu. Húsnæðið er á jarðhæð og er vel skipulagt. Eignin er einstaklega vönduð og snyrtileg með álklæðningu og ál gluggum.
Heildar lofthæð er 2,7 metrar en ef kerfisloft er fjarlægt næst 3,1 metra lofthæð.
Epoxy teppi á gólfum og flísar. Veggir með gifsklæðningu og tvöfalt E 30 gifs í brunahólfum.
Auðvelt að breyta eigninni og sameina minna rýmið við aðalrými, milliveggir eru léttir.
Andyri:
Sameiginlegt anddyri og stigahús með öðrum hluta hússins. Gengið er til hægri í rýmið.
Framrými:
Búið er að stúka af rýmið að hluta til með léttum veggjum sem auðvelt er að fjarlægja. Í þessu rými eru svo tvö herbergi annað 10,6 fm og hitt 7,2 fm ásamt rúmgóðu 5,3 fm salerni með flísum, innbyggðu salerni og vaski. Einnig er vönduð lítil eldhúsinnrétting með vaski sem og góður skápur.
Bakrými:
Baka til er 45 fm rými með epoxy teppi ásamt tveimur 5 fm geymslum og sameiginlegu töfluherbergi.
Sérrými:
Sérrými er aftan við húsið og er framhald af bakrými. Sér inngangur og möguleiki á að setja vöruhurð. Gengið er inn í aðalrými sem er 27 fm og til hliðar við það er gangur með 2 fm salernisaðstöðu og 8 fm kaffistofu. Góðir tekjumöguleikar.
Sameign:
Til sameignar telst stigahús ásamt 14 fm bogadregnu sorpskýli. Þjófavarnarkerfi er í húsinu.
Hitaveita:
Hitaveitan er sér fyrir þetta rými. Ofnakerfi er í húsinu.
Loftræsting:
Sér loftræstikerfi er í rýminu.
Stórt bílastæði, heldar stærð lóðar er 4560 fm
Öll lóðin er malbikuð og er sameign allra eiganda húsnæðis. Lóðin og bílastæðin nýtist vel undir margvíslega starfssemi svo sem bílaleigu.
Húsnæðið er allt vandað og býður upp á mikla möguleika. Nálægð við flugvöll gerir húsnæðið að mjög eftirsóttri eign.
Nánari upplýsingar veitir Elín Frímanns Löggiltur fasteignasali, í síma 8674885, tölvupóstur [email protected]
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Sæki nálæga staði…
Áætlaður kaupkostnaður
— kr.
- Stimpilgjald
- 259.600 kr.
- Lántökugjald
- 0 kr.
- Þinglýsing skjala
- 3.800 kr.
- Umsýslugjald
- —
Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.
Umsýslugjald liggur ekki fyrir.
Lánareiknivél
Fyrsta greiðsla
236.798 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
244.228 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
263.029 kr.
Óverðtryggt
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Íslandsbanki
0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.
Yfir 80% veðsetningu bætist við óverðtryggt aukalán til mest 10 ára á 11,35% vöxtum, að hámarki 7 m.kr. og 90% heildarveðsetningu við fyrstu kaup.
Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.
Vaxtatafla gildir frá 3. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.
Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026
Fleiri myndir


















