Hæðargata 9
Eignin skipstist í forstofu, forstofu herbergi, forstofu salerni, hol, stofu og borðstofu, þvottahús, eldhús, búr með stiga niður á neðri hæð sem er tæplega 40 fm, herbergja gangur með sjónvarpsrými sem var áður tvö svefnherbergi, baðherbergi, hjónaherbergi og barnaherbergi.
*** Vel skipulagt hús
*** Auðvelt að vera með fimm svefnherbergi (upprunanlegt skipulag)
*** Járn á þaki endurnýjað 2010
*** Gluggar endurnýjaðir á tveimur hliðum eignar nýverið
*** Snyrtileg aðkoma og lóð í rækt
Nánari upplýsingar veita:
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur [email protected].
Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 771-9820, tölvupóstur [email protected]
Aðkoma er að stóru hellulögðu bílaplani, lóð tyrfið og vel ræktuð. Búið er að endurnýja nýlega glugga á tveimur áveðursáttum ásamt því að endurnýjað var járn á þaki árið 2010.
Staðsetning eignar er gott í rólegri hliðargötu, stutt í leik og grunnskóla sem og alla helstu þjónustu.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa flísalögð með fatahengi
Forstofuherbergi með parketi gólfi.
Forstofusalerni með handlaug og salerni. Flísar á gólfi.
Stofa / borðstofa flísalögð með útgengni út á sólpall. Stórir gluggar sem gefa góða birtu.
Þvottahús með góðri innréttingu með skolvask og aðstöðu fyrir þvottavél, flísalagt gólf,og útgengni út á bílastæði.
Eldhús: Flísalagt gólf, borðkrókur og inrétting. Innbyggð uppvöskunarvél.
Búr inn af eldhúsi, þar er hægt að ganga niður stiga í rými neðri hæðar, einnig hægt að ganga út á bílastæði.
Rými neðrihæðar er niðurgengt frá búri sem er staðsett inn af eldhúsi. Inntök eru og ýmsir möguleikar fyrir hendi. Stærð tæplega 40 fm.
Herbergjagangur með sjónvarpsrými sem var áður tvö svefnherbergi, auðvelt að stúka af aftur.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og góðum skáp.
Baðherbergi endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf með innréttingu, baðkari og salerni
Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Bílskúr með hurðaopnara og útgengni út á baklóð.
Vel við haldið og skipulagt fjölskylduhús í hjarta Njarðvíkur.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ -
Reykjavíkurveg 66 - 220 Hafnarfjörður
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 kr m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Sæki nálæga staði…
Áætlaður kaupkostnaður
— kr.
- Stimpilgjald
- 399.600 kr.
- Lántökugjald
- 0 kr.
- Þinglýsing skjala
- 3.800 kr.
- Umsýslugjald
- —
Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.
Umsýslugjald liggur ekki fyrir.
Lánareiknivél
Fyrsta greiðsla
360.709 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
375.938 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
393.246 kr.
Óverðtryggt
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Landsbankinn
0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.
Verðtryggð lán eru aðeins í boði við fyrstu kaup, til 20 ára og að 85% veðsetningu. Óverðtryggð lán ná að 80%, eða 90% við fyrstu kaup.
Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.
Vaxtatafla gildir frá 1. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.
Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026
Fleiri myndir

































