Norðurland 3
311 Borgarnes
- Tegund Lóð/ Jörð
- Stærð 0 fm
- Stofur 0
- Herbergi 0
- Svefnherbergi 0
- Baðherbergi 0
- Inngangur Sér
- Byggingaár 0
- Brunabótamat 0
- Fasteignamat 5.090.000
Lýsing
Það liggur fyrir deiliskipulag fyrir 22 sumarhúsalóðir og hefur umhverfis-, skipulags- og landbúnaðarnefnd samþykkt skipulagið. Endanlegri afgreiðslu hefur verið vísað til sveitarstjórnar.
Sjá nánar tölulið 8. hér: Umhverfis-, skipulags- og landbúnaðarnefnd - 30. fundur - 02.03.2016 | Borgarbyggð (borgarbyggd.is)
Fyrirspurn var send á Skipulagsstofnun varðandi málið og í svörum kemur fram að stofnunin telji að hefja þurfi málsmeðferðina á ný.
Samkvæmt deiliskipulagi eru einkenni svæðisins lág klapparholt með mólendi á milli og mýrlendi við tjörnina sem fellur undir hverfisvernd flóa í aðalskipulagi. Vegna framræslu hefur svæðið breyst úr því að vera votlendi milli lágra klapparholta í að verða mólendi. Þessi breyting, ásamt friðun fyrir beit, hefur haft í för með sér breytt gróðurfar þar sem Fjalldrapi, Birki og íslenskar víðitegundir hafa tekið sér bólfestu.
Leiðarlýsing: Borgarnes til Ferjubakkavegur – Google kort
Nánari upplýsingar veita:
Kristinn Sigurbjörnsson - löggiltur fasteignasali á [email protected] eða í síma: 560-5502
ALLT FASTEIGNIR ehf – MOSFELLSBÆ (Þverholti 2) – REYKJANESBÆ (Hafnargötu 91) – GRINDAVÍK (Víkurbraut 62) – ALLT fyrir þig...
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamning - 0.8 % af heildar fasteignamati, 0,4% við fyrstu kaup og fyrir lögaðila 1,6% af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingar gjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fleira 2.500 kr af hverju skjali.
3. Lántöku kostnaður lánastofnunar – fer eftir lánastofnun hverju sinni.
4. Umsýslu gjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Fasteignakaupalög nr. 40/2002 leggja ríka skoðunarskyldu á kaupendur. Við brýnum því fyrir kaupendum að skoða fasteignir vel fyrir tilboðsgerð og leita sér viðeigandi aðstoðar sérfræðinga þegar ástæða þykir til..