Skipholt 50, 105 Reykjavík (Austurbær)
119.000.000 Kr.
Atvinnuhús/ Skrifstofuhúsnæði
0 herb.
305 m2
119.000.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
2
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1985
Brunabótamat
97.700.000
Fasteignamat
85.200.000

ALLT fasteignasala –  kynnir í einkasölu skrifstofuhúsnæði á þriðju hæð í lyftuhúsi á einum vinsælasta stað borgarinnar við Skipholt 50c nánar tiltekið eign merkt 01-03-02, fastanúmer 222-6441. Birt stærð 305.2 fm 

Hér er um frábært tækifæri að ræða þar sem þetta húsnæði hentar vel undir ýmisslega starfsemi en hefur einnig útleigumöguleika

Nánari lýsing:
Eigninni hefur verið skipt upp í tvö rými ca 130 fm hvort, tvö ca 20 fm herbergi með vask, gang, tvö salerni og vaskahús. 


Rými 1 er notað í dag sem lækna og skurðstofa en það rými hefur allt verið tekið i gegn samkvæmt því og er sérstakur dúkur á gólfum og loftræstibúnaður með Hepar bakteríufilter
Þar má telja móttöku, viðtalsherbergi, vel útbúna skurðstofu, herbergi fyrir dauðhreinsun, vöknun, litla geymslu og litla kaffistofu.
Læknastofan er einnig til sölu með öllum tólum og tækjum og má þar helst nefna skurðarborð, Maquet með axlartoppi og armstuðning og höfuðstuðning, svæfingarvél, skurðstofustólar, skurðstofulampi, Skopiuturn ljósgjafi, videoprinter, camerax2 ásamt fleiri tækjum og tólum sem við höfum lista yfir. 
Neysuvatnslagnir álpex en skipt var um lagnir við eldhúsvask, vask í dauðhreinsun og í viðtalsherbergi 


Rými 2 er í útleigu en er notað sem skrifstofurými sem telur 3 herbergi (skrifstofur), fundarsal, eldhús og sameiginilegt rými sem notað er sem setustofa í dag.
Þar er einnig nýlegur dúkur á gólfum.
Eldri rúmgóð innrétting í eldhúsi, lítill ísskápur og borðkrókur 
Fundarsalur hefur verið notaður fyrir fyrirlestra og kennslu með skjávarpa

20 fm herbergin tvö hafa verið í útleigu til sérfræðinga

Baðherbergin tvö eru mjög snyrtileg en þau eru nýlega uppgerð með upphengdu salerni og nýjum vaskaskáp og nýjum vaski

Ræstingarými rúmgott og bjart og væri möguleiki að gera sturtu þar  

Sameiginlegur inngangur á neðstu hæð en þar er anddyri með lyftu og stigagang uppá efri hæðir. Stigagangur nýmálaður, mjög snyrtilegur með dúk á gólfi
Húsnæðið er á þriðju hæð.
Stórir opnanlegir gluggar á öllum hliðum hússins sem gerir húsnæðið bjart og skemmtilegt
Nóg er af gjaldfrjálsum bílastæðum á lóð framan við húseign og mjög gott hjólastólaaðgengi við inngang.

Hugsanlega mætti skipta eign í tvö fastanúmer ef samþykki fengist en á teikningum er bilunum skipt upp með brunavegg

Nánari upplýsingar og skoðunarbókanir veitir Bjarklind Þór löggiltur fasteignasali á [email protected] eða í síma 560-5513

ALLT FASTEIGNIR –  GRINDAVÍK (Víkurbraut 62) - REYKJANESBÆ (Hafnargötu 91) – MOSFELLSBÆ (Þverholti 2) Allt fyrir þig...


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamning - 0.8 % af heildar fasteignamati, 0,4% við fyrstu kaup og fyrir lögaðila 1,6% af heildar fasteignamati. 
2. Þinglýsingar gjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fleira 2.500 kr af hverju skjali. 
3. Lántöku kostnaður lánastofnunar – fer eftir lánastofnun hverju sinni.
4. Umsýslu gjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.

Fasteignakaupalög nr. 40/2002 leggja ríka skoðunarskyldu á kaupendur. Við brýnum því fyrir kaupendum að skoða fasteignir vel fyrir tilboðsgerð og leita sér viðeigandi aðstoðar sérfræðinga þegar ástæða þykir til. 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.