Virkilega fallegt, mikið endurnýjað einbýlishús að Lágseylu 10. Eignin hefur einstakt hafútsýni, 5 svefnherbergi, 2 baðherbergi, opið eldhús með eyju, rúmgóða stofu, bílskúr, forstofu, þvottahús, sólpalla, heitan pott og útigufu. Sólpallur að framan snýr í suður og útsýnispallur frá stofu sólesturmegin.Virkilega spennandi eign sem vert er að skoða
Fáðu söluyfirlit á [email protected]* Eignin hefur verið endurnýjuð að nánast öllu leiti að innan árið 2018, á afar smekklegan hátt eftir teikningum og hönnun Berglindar Berndsen, ásamt því að vera vel viðhaldin að utan.
* Eldhúss- og baðherbergis innréttingar eru sérsmíðaðar af Aðalvík með veglegum granít borðplötum úr vönduðum dökkum við.
* Gólfefni eru vönduð frá Birgisson og innihurðar frá Ebson.
* Loft hafa verið tekin niður með fallegri innfeldri lýsingu og skipt hefur verið um innihurðar.
* Baðherbergi hafa bæði verið endurnýjuð að fullu.
* Fjögur góð svefnherbergi eru í húsinu ásamt góðu svefnherbergi í hluta af bílskúr, gott geymsluloft er yfir húsinu.
* Góður sólpallur með trédekki og steyptum skjólvegg er að framanverðu húsinu, ásamt rúmgóðu bílaplani með snjóbræðslu. Að aftanverðu húsinu er stór sólpallur með heitum potti, gufubaði og stórbrotnu útsýni yfir hafið, einnig útigeymslur.
Ástand hússins er að öllu leiti mjög gott og endurbætur sérlega vel heppnaðar.
Nánari upplýsingar veitir Unnur Svava lfs. í síma 868-2555, eða á
[email protected] eða Elínborg Ósk lfs. í síma 823-1334, eða á
[email protected] og
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamning - 0.8 % af heildar fasteignamati, 0,4% við fyrstu kaup og fyrir lögaðila 1,6% af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingar gjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fleira 2.500 kr af hverju skjali.
3. Lántöku kostnaður lánastofnunar – fer eftir lánastofnun hverju sinni.
4. Umsýslu gjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Fasteignakaupalög nr. 40/2002 leggja ríka skoðunarskyldu á kaupendur. Við brýnum því fyrir kaupendum að skoða fasteignir vel fyrir tilboðsgerð og leita sér viðeigandi aðstoðar sérfræðinga þegar ástæða þykir