Dalsbraut 14, 260 Njarðvík
53.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
87 m2
53.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2018
Brunabótamat
42.500.000
Fasteignamat
43.850.000

ALLT FASTEIGNASALA kynnir í einkasölu: 
Mjög fallega, bjarta og einstaklega vel skipulagaða 87,2 m2 enda íbúð á jarðhæð með sérinngangi í tveggja hæða fjölbýlishúsi í Innri Njarðvík.  Byggingarár er 2018. Eignin samanstendur af forstofu, 3 svefnherbergi, glæsilegu baðherbergi með þvottaaðstöðu, eldhúsi sem er opið inn í stofu, glæsilegan rúmgóðan sólpall og geymslu í sameign. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 84,3 m2 auk 2,9 m2 geymslu. Gólfhiti er í allri eigninni. Sérmerkt bílastæði. Sameiginleg hleðslustöð fyrir íbúa í húsinu.


**Eignin getur losnað fljótlega eftir kaupsamning.

** 3 svefnherbergi
** Jarðhæð
** Sérinngangur
** Stór sólpallur
** Enda íbúð
** Á móti leik og grunnskóla
** Eign byggð 2018
** Stapaskólahverfi
** Fallegar innréttingar
** Nýlega máluð að innan


Nánari lýsing.
Forstofa: með fallegum gráum flísum á gólfi.
Gangur: með harðparketi á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús: er opið inn í stofu með fallegri dökkri innréttingu með ljúflokunum þar sem gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu, AEG ofn í vinnuhæð, AEG keramik helluborð með viftu yfir. Harðparket á gólfi.
Stofa: er mjög rúmgóð og björt með harðparketi á gólfi og útgengi út á rúmgóðan sólpall og hliði út í sameiginlegan garð.
Hjónaherbergi: með harðparket á gólfi og hvítum fataskáp á heilum vegg.
Barnaherbergi: 2 barnaherbergi með harðparket á gólfi og hvítum fataskápum.
Baðherbergi: með fallegri innréttingu ásamt efri skápum með speglahurðum,  einnig er mjög rúmgóð innrétting með miklu geymsluplássi þar sem gert er ráð fyrir þurrkara og þvottavél í vinnuhæð, flísar á gólfi og hluta til á veggjum. Handklæðaofn og rúmgóð sturta. 
Geymsla: með máluðu gólfi.

Í sameign er sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Húsgjöld eignarinnar eru 11.600 kr á mánuði . Innifalið í húsgjöldum er almennur rekstur, allur hitakostnaður, rafmagn í sameign og húseigandatrygging. Góð og snyrtileg aðkoma er að húsinu  Eignin er staðsett í vinsælu Stapaskóla hverfi. Stutt er í nýlegan Stapaskóla, leikskóla, og verslun.

** Falleg eign sem sannarlega er vert að skoða**


Nánari upplýsingar veitir Aron M. Smárason lfs. í síma 5605516, eða á [email protected]
Hvers virði er þín eign? Frítt og skuldbindingarlaust verðmat hér..

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamning - 0.8 % af heildar fasteignamati, 0,4% við fyrstu kaup og fyrir lögaðila 1,6% af heildar fasteignamati. 
2. Þinglýsingar gjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fleira 2.500 kr af hverju skjali. 
3. Lántöku kostnaður lánastofnunar – fer eftir lánastofnun hverju sinni.
4. Umsýslu gjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Fasteignakaupalög nr. 40/2002 leggja ríka skoðunarskyldu á kaupendur. Við brýnum því fyrir kaupendum að skoða fasteignir vel fyrir tilboðsgerð og leita sér viðeigandi aðstoðar sérfræðinga þegar ástæða þykir

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.