Ásabraut 14
230 Keflavík
- Tegund Hæð/ Hæð og ris
- Stærð 75 fm
- Stofur 1
- Herbergi 3
- Svefnherbergi 2
- Baðherbergi 1
- Inngangur Sér
- Byggingaár 1948
- Brunabótamat 33.100.000
- Fasteignamat 34.500.000
Lýsing
Um er að ræða fallega og mikið endurnýjaða íbúð miðsvæðis í Keflavík. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, stofu og óskráðu risi sem möguleiki er að nýta sem auka svefnherbergi
** Húsgögn eignar fylgja með sem og þvottavél, þurrkari og ísskápur
** Nýjir gluggar í eldhúsi, stofu og á rislofti
** Nýlegt harðparket og hurðar
** 2/3 svefnherbergi
** Mikið endurnýjuð
** Óskráð ris/loft
** Stutt í alla helstu þjónustu
** Laus fljótlega
Nánari upplýsingar veitir/veita:
Elínborg Ósk Jensdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 823-1334, tölvupóstur [email protected].
Sigurjón Rúnarsson Aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 771-9820, tölvupóstur [email protected]
Nánari lýsing eignar:
Forstofa hefur parket á gólfi
Eldhús hefur hvíta innréttingu, helluborð, bakaraofn og uppþvottavél
Stofa hefur parket á gólfi
Svefnherbergin eru tvö og hafa parket á gólfi
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og hluta veggja, nýlega innréttingu með handlaug og baðkar/sturtu
Ris/loft er óskráð rúmgott, hefur mikla möguleika m.a. sem auka svefnherbergi
Þvottahús: Er sameiginlegt með neðri hæð, þvottavél og þurrkari fylgir með.
Umhverfi: Miðsvæðis, stutt í alla helstu þjónustu
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.