Ásabraut 13
230 Keflavík
- Tegund Parhús/ Parhús á tveimur hæðum
- Stærð 148 fm
- Stofur 2
- Herbergi 6
- Svefnherbergi 4
- Baðherbergi 2
- Inngangur Sér
- Byggingaár 1948
- Brunabótamat 60.750.000
- Fasteignamat 54.100.000
Lýsing
Bjart og afar rúmgott 148.0 fm. 6 herbergja parhús á tveimur hæðum við Ásabraut 13 í Reykjanesbæ. Möguleiki er á 5 herbergjum og einfalt að breyta í tvær íbúðir. Eignin er virkilega rúmgóð, og hentar vel fyrir stærri fjölskyldur eða fjárfesta. 4 svefnherbergi, möguleiki á 5. Salerni er á efri hæð og baðherbergi á neðri hæð. Rúmgott bílastæði fyrir framan húsið. Möguleiki að breyta eigninni í tvær íbúðir. Teikningar af bílskúr eru samþykktar og hafa gjöld verið greidd.
** FALLEG RÚMGÓÐ FJÖLSKYLDU EIGN SEM VERT ER AÐ SKOÐA **
* Nýlegir gluggar
* Sér inngangur á báðum hæðum
* 4 - 5 svefnherbergi
* 2 baðherbergi
* Geymsluskúr í garði fylgir,
* Óskráð rými í risi með glugga
* Yfirbyggð úriaðstaða fyrir grill, góður garður til suðurs
* Drenlagnir voru lagðar 2002 sem og sökkull endurnýjaður
* Snjóbræðslukerfi er í helming af innkeyrslu sem og einnig að framanverðu húsi
* Útigeymsla er undir stigapalli, hiti og rafmagn er í henni
* í göngufæri við miðbæinn, fjölbrautaskóla, grunnskóla, leikskóla, verslunarkjarna, fimleikahús, fótboltahöll, íþróttahús og sundlaug
* Útitröppur verða lagfærðar í sumar 2024
Nánari upplýsingar og skoðunarbókanir veita:
Elínborg Ósk Jensdóttir löggiltur fasteignasali á [email protected] eða 823-1334
Sigurjón Rúnarsson Aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 771-9820, tölvupóstur [email protected].
Nánari lýsing:
Efri hæð:
Hefur sérinngang
Forstofa: með flísum, fatahengi. Hurð að stiga upp á ris, sem hefur góða geymslu yfir allri hæðinni sem er óskráðir fermetrar, þar er gluggi.
Eldhús: Hefur hvíta innréttingu, flísar á gólfi og á milli innréttinga
Borðastofa/stofa: Er opin og björt, með parket á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar í á gólfi. Salerni og handlaug, hvít innrétting.
Gengið er niður teppalagðan stiga.
Neðri hæð:
Hefur einnig sér inngang
Svefnherbergi: Rúmgott og parketlagt.
Svefnherbergi: Rúmgott með fataskáp og nýlegu parketi.
Svefnherbergi: Stórt og hefur hurð út í fallegan garð, nýlegt parket og góður fataskápur.
Baðherbergi: Baðherbergi með flísum og hefur 3 glugga. Hvít baðinnrétting, baðkar, salerni og sturta.
Þvottahús: Er á neðrihæð innangegnt úr forstofu neðri hæðar.
Lítil en góð geymsla undir stiga.
Garður: Skjólgóður, gróinn garður í suður átt, nýlegur geymsluskúr fyrir garðáhöld. Nýleg björt og góð yfirbyggð grillaðstaða.
Bílastæði: Stór innnkeyrsla með snjóbræðslukerfi að framanverðu húsi og helming af innkeyrslu. Geymslurými undir stigatröppum með hita og rafmagni.
Húsið hefur verið vel við haldið.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamning - 0.8 % af heildar fasteignamati, 0,4% við fyrstu kaup og fyrir lögaðila 1,6% af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingar gjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fleira 2.500 kr af hverju skjali.
3. Lántöku kostnaður lánastofnunar – fer eftir lánastofnun hverju sinni.
4. Umsýslu gjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Fasteignakaupalög nr. 40/2002 leggja ríka skoðunarskyldu á kaupendur. Við brýnum því fyrir kaupendum að skoða fasteignir vel fyrir tilboðsgerð og leita sér viðeigandi aðstoðar sérfræðinga þegar ástæða þykir til.